Handbolti

„Höfum séð liðið brotna í sömu að­stæðum“

Aron Guðmundsson skrifar
Gísli Þorgeir brýst í gegnum ungverska varnarmúrinn í Kristianstad. Oft á tíðum var tekið helst til of harkalega á móti honum.
Gísli Þorgeir brýst í gegnum ungverska varnarmúrinn í Kristianstad. Oft á tíðum var tekið helst til of harkalega á móti honum. Vísir/EPA

Hand­boltasér­fræðingur segir það glatað fyrir ís­lenska lands­liðið að vera án Elvars Arnar Jónssonar það sem eftir lifir af EM. Hann er þó bjartsýnn og segir Strákana okkar hafa sýnt það gegn Ungverjum að þeir ætli sér hluti á þessu móti, í svipuðum aðstæðum og í þeim leik hafi liðið áður brotnað.

Það vann ýmis­legt á móti ís­lenska liðinu gegn Ung­verjum á þriðjudaginn síðastliðinn. Þegar að sóknar­leikurinn klikkaði steig Viktor Gísli upp í markinu og ákvarðanir dómara­t­eymi leiksins voru á köflum ansi furðu­legar. Aðstæður þar sem Strákarnir okkar gerðu vel í að halda haus og klára verk­efnið og tryggja sér tvö stig inn í milli­riðilinn.

„Ég hafði alltaf á til­finningunni að Ung­verja leikurinn yrði erfiður,“ segir Rúnar Kára­son, fyrr­verandi lands­liðs­maður í sam­tali við íþrótta­deild. „Það virðist vera ein­hver sál­fræði­leg hindrun þar og í ljósi sögunnar undan­farin stór­mót. Ég held það sé ótrú­lega mikilvægt að vinna þann leik bara eins erfitt það var og mikið mótlæti frá dómurunum og annað. Ég held það hafi gefið liðinu ógeðs­lega mikið upp á fram­haldið að gera.“

„Mér finnst við hafa séð liðið brotna í sömu aðstæðum síðustu tvö stór­mót. Maður sá það á strákunum að þeir létu þetta ekki slá sig út af laginu, þeir lögðu allt í sölurnar og í ótrú­lega erfiðum leik þar sem þeir náðu sínu besta fram. Ótrú­lega vel gert að stíga þessa hindrun al­gjör­lega og kaffæra henni.“

Þýðir ekki að kvarta yfir svona hlutum

Ung­verjarnir engin Grýla í þetta skiptið en ís­lenska lands­liðið varð fyrir áfalli í leiknum þegar Elvar Örn Jóns­son, einn mikilvægasti leik­maður liðsins fór meiddur af velli. Í gær var greint frá því að hann hefði handar­brotnað og verði ekki meira með á EM.

„Elvar er bara gríðar­lega þýðingar­mikill fyrir okkur og ekki hægt að tala neitt í kringum það. Ég er nú samt bara þannig þenkjandi og dreg einnig reynslu frá fyrri lands­liðs­verk­efnum mínum þegar ég segi að þegar maður hefur verið kvarta yfir svona hlutum þá yfir­leitt kemur það ekkert sér­stak­lega vel út. Það eru öll lið að glíma við meiðsli.“

Elvar sé frábær leik­maður sem tekur ótrú­lega mikið til sín í spiltíma og orkuútláti í vörn sér­stak­lega. 

„Þá hjálpar hann líka helling til í sókninni þó það sé kannski hlut­verk sem minnkar eftir því sem líður á mótið því þá hefur mikilvægi hans í vörninni yfirleitt aukist. Núna er hann bara ekki með, það er glatað og við eigum miklu frekar að horfa á lausnirnar heldur en vanda­málin finnst mér. Miðað við það sem ég sá til liðsins í gær þá ætla þeir sér ein­hverja hluti á þessu móti. Það verður bara að vera án Elvars núna.“

Ekkert gefins

Í milli­riðli, sem hefst á föstu­daginn, bíða leikir gegn Svíþjóð, Króötum Dags Sigurðs­sonar, Slóveníu og Sviss. Tvö efstu lið milli­riðilsins fara áfram í undanúr­slit. Það hefur gengið vel hingað til hjá ís­lenska lands­liðinu en það er ekkert gefið í hand­bolta.

„Miðað við það sem maður hefur séð á stór­mótum hingað til þá eiga lið yfir­leitt einn glataðan leik. Við bitum í það súra epli í fyrra að hitta á svo­leiðis leik gegn Króötum, við sjáum Danina tapa í gær fyrir Portúgal. Við verðum bara að vinna Króatíu og Svíþjóð, það er bara þannig. Ég held það verði þessi þrjú lið sem munu berjast um þessi tvö undanúr­slitasæti.

Það er kannski Sviss sem er fyrir fram slakasti and­stæðingur okkar fram undan en það er ekkert gefins í hand­bolta. Liðið sem er hundrað pró­sent á deginum er yfir­leitt liðið sem vinnur leikinn. Það er ekki nóg að vera betri á pappír, þú verður bara að sýna þig og sanna í hverjum einasta leik.“


Tengdar fréttir

Svona meiddist Elvar

Elvar Örn Jónsson spilar ekki meira á Evrópumótinu í handbolta, eftir að hafa handarbrotnað þegar hann varðist gegn leikmanni Ungverjalands í gærkvöld.

Miðar á leikina í milliriðlinum rjúka út

Ísland tekur tvö stig með sér í milliriðlakeppnina á EM, eftir sigurinn gegn Ungverjalandi í gær. Milliriðillinn verður spilaður í Malmö og búist er við því að miðar á leiki Íslands seljist hratt upp.

Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands

Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður Íslands og leikmaður Veszprem í Ungverjalandi, var líklega á meðal glaðari manna eftir sigur Íslands í kvöld. Ungverjar eru misglaðir eftir kvöldið.

Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð

Ísland er komið í milliriðil EM með tvö stig eftir 24-23 sigur á Ungverjum í Kristianstad í kvöld. Ótrúlegur leikur og skrípaleikur svo sannarlega á köflum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×