Gísli Þorgeir sá fjórði stoðsendingahæsti á EM Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. janúar 2026 11:30 Gísli Þorgeir hefur verið mjög öflugur fyrir Ísland á EM. Vísir/EPA Riðlakeppninni á EM í handbolta lauk í gærkvöldi og þá er tilefni til að skoða tölfræðina áður en milliriðlarnir hefjast.
Ísland tók tvö stig með sér í milliriðilinn og er í góðum málum fyrir fyrsta leik gegn Króatíu á morgun. Svíþjóð bíður svo á sunnudag, Sviss á þriðjudag og Slóvenía á miðvikudag. Gísli Þorgeir Kristjánsson skaraði fram úr í íslenska liðinu í leikjunum gegn Ítalíu, Póllandi og Ungverjalandi. Hann er bæði marka- og stoðsendingahæstur hjá íslenska liðinu og er í fjórða sæti yfir stoðsendingahæstu menn mótsins. Óli Mittún - 24 stoðsendingar Blaz Janc - 19 stoðsendingar Sander Sagosen - 18 stoðsendingar Gísli Þorgeir Kristjánsson og Aellen Felix - 17 stoðsendingar Mathias Gidsel - 16 stoðsendingar Markaskorunin hefur dreifst nokkuð jafnt milli sóknarmanna Íslands en Gísli hefur verið langduglegastur að leggja upp fyrir liðsfélaga sína. Viktor Gísli Hallgrímsson átti frábæran leik gegn Ungverjalandi og er í fjórða sæti yfir flest varin skot á mótinu. Elliði Snær Viðarsson sýndi mjög öfluga varnarframmistöðu í síðasta leik og situr í fimmta sæti yfir flest varin skot utan af velli. Hann er líka efstur á íslenska listanum yfir stolna bolta. Tölfræðin er þó ekki alveg heilög, eins og Viktor Gísli fékk að kynnast, þá getur hún klikkað. Viktor er með fleiri varin skot en tölfræði EHF gefur til kynna og Gísli er líka með fleiri stoðsendingar, en leikmenn annarra liða lenda eflaust líka í því. Svo má draga það stórlega í efa að Elliði Snær Viðarsson sé búinn að gefa fleiri stoðsendingar á mótinu en Ómar Ingi Magnússon. Listanum skal því taka með fyrirvara um villur en hann er unninn upp úr opinberri tölfræði evrópska handboltasambandsins. Heildar tölfræðilista EHF má finna hér en hér fyrir neðan er helsta tölfræðin hjá strákunum okkar tekin saman. Hverjir skoruðu mest? Gísli Þorgeir Kristjánsson - 16 mörk Ómar Ingi Magnússon - 15 mörk Orri Freyr Þorkelsson - 13 mörk Janus Daði Smárason - 11 mörk Orri Freyr Þorkelsson og Haukur Þrastarson - 7 mörk Hverjir gáfu flestar stoðsendingar? Gísli Þorgeir Kristjánsson - 17 stoðsendingar Elliði Snær Viðarsson - 6 stoðsendingar Ómar Ingi Magnússon - 5 stoðsendingar Janus Daði Smárason - 5 stoðsendingar Haukur Þrastarson - 4 stoðsendingar Hverjir töpuðu boltanum oftast? Janus Daði Smárason - 6 tapaðir boltar Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon - 5 tapaðir boltar Haukur Þrastarson og Elvar Örn Jónsson - 3 tapaðir boltar Hver skýtur fastast? Viggó Kristjánsson - Meðalskothraði 124.74 km/klst. Hverjir spila mest? Viktor Gísli Hallgrímsson - 2 klst. og 37 mínútur. Óðinn Þór Ríkharðsson - 2 klst. og 19 mínútur. Ómar Ingi Magnússon - 1 klst. og 59 mínútur. Elliði Snær Viðarsson - 1 klst. og 55 mínútur. Hver var oftast rekinn út af? Ýmir Örn Gíslason - 3 brottvísanir, 1 rautt spjald og 1 gult spjald Ómar Ingi Magnússon - 2 brottvísanir og 1 gult spjald Janus Daði Smárason - 2 brottvísanir Hver stelur boltanum oftast? Elliði Snær Viðarsson - 5 stolnir boltar Viggó Kristjánsson - 3 stolnir boltar Elvar Örn Jónsson, Orri Freyr Þorkelsson og Haukur Þrastarson - 2 stolnir boltar
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Elín Klara sænskur meistari Handbolti Fleiri fréttir Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Sjá meira