Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 25. janúar 2026 16:15 Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, listdansstjóri Íslenska dansflokksins, er himinlifandi með viðtökurnar. vísir/Lýður Hátt í eitt þúsund sóttu um að komast í áheyrnaprufu sem Íslenski dansflokkurinn auglýsti. Listdansstjóri segir fjölda umsókna langt um fram það sem áður hefur sést og til marks um velgengni flokksins á alþjóðavísu.
Íslenski dansflokkurinn lagði á dögunum út net og auglýsti áheyrnaprufu fyrir framtíðarverkefni flokksins. Auglýsingu var meðal annars komið fyrir á erlendum síðum til að ná til dansara víðar en á Íslandi og óhætt er að segja að bitið hafi á agnið. Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, listdansstjóri Íslenska dansflokksins, segir níu hundruð og fjörutíu umsóknir hafa borist. „Þetta var bara svona tala sem að maður hefur ekki séð. Þannig að við tók að fara yfir níu hundruð og fjörutíu umsóknir og vídeó frá dönsurum víðs vegar um heiminn.“ Úr sýningunni Flóðreka eftir Aðalheiði Halldórsdóttur og Jónsa í Sigurrós.vísir/Björgvin Sigurðarson Fjörutíu og fimm umsóknir bárust frá íslenskum dönsurum en aðrar, tæplega níu hundruð frá erlendum. Lovísa segir viðtökurnar hafa komið á óvart. „Við erum búin að vera rosalega að klóra okkur í hausnum yfir þessu. Við höfum oft talað um að Íslenski dansflokkurinn er eiginlega töluvert þekktari erlendis en hérlendis og þetta bara svolítið styður þá kenningu. Það er bara ótrúlega mikill heiður og svona ákveðin viðurkenning að finna hvað það eru margir sem að vilja flytja til Íslands til þess að vinna fyrir Íslenska dansflokkinn.“ Ljóst er að mikill niðurskurður er fram undan en áheyrnarprufur fara fram í lok febrúar og um tuttugu og fimm til þrjátíu verða boðaðir í lokaprufur. Að minnsta kosti ein full staða er í boði og svo fleiri sem verða í kringum ákveðin verkefni. Dansverkið Garðurinn eftir þá Antonio de Rosa og Mattia Russo verður frumsýnt í febrúar. vísir/Björgvin Sigurðarson Lovísa segir spennandi tíma fram undan hjá flokknum en verið var að bæta við aukasýningum á verkinu Flóð/Rek vegna mikillar aðsóknar. Þá eru fram undan sýningar á verkinu Garðinum sem verður frumsýnt þann. 7. febrúar. „Við ætlum að tyrfa Stóra sviðið og þetta verður mikið sjónarspil og nýtt krydd í það sem er búið að vera í gangi hér á Íslandi. Þannig að það verður gaman fyrir áhorfendur og bara dansinn í heild sinni að fá þetta verk á fjalirnar,“ segir Lovísa.
Dans Borgarleikhúsið Leikhús Menning Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira