Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. janúar 2026 14:36 Mateus Fernandes skoraði einkar glæsilegt mark. Rob Newell - CameraSport via Getty Images West Ham tókst að tengja saman sigra og leggja Sunderland að velli með 3-1 sigri í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Öll þrjú mörk West Ham voru skoruð í fyrri hálfleik er heimamenn sýndu mikla yfirburði. Jarrod Bowen lagði fyrsta markið upp fyrir Crysencio Summerville sem skoraði með hnitmiðuðum skalla. Bowen skoraði síðan annað markið úr vítaspyrnu eftir brot Trai Hume á Oliver Scarles og hárréttan dóm. Fernandes mundaði fótinn Þriðja markið var einkar glæsilegt en þá skaut Mateus Fernandes boltanum í netið af löngu færi. Sunderland minnkaði muninn um miðjan seinni hálfleik með skallamarki Brian Brobbey eftir fyrirgjöf Nordi Mukiele. Fernandes átti eftir að munda skotfótinn aftur og West Ham kom boltanum í netið einu sinni enn í uppbótartímanum þegar Tomas Soucek fylgdi sláarskoti hans eftir, en Soucek var dæmdur brotlegur og markið fékk ekki að standa. Nálgast Nottingham Forest West Ham er enn í fallsæti, átjánda sætinu, en hefur unnið tvo leiki í röð og er nú aðeins tveimur stigum frá Nottingham Forest. Sunderland hefði með sigri getað jafnað Liverpool að stigum og komið sér upp í fimmta sætið en tapið þýðir að svörtu kettirnir sitja áfram í níunda sætinu.
Enski boltinn West Ham United Sunderland AFC Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira