„Hann er örugglega góður pabbi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. janúar 2026 11:03 Janus Daði Smárason Vísir/Vilhelm Janus Daði Smárason býst við hröðum leik er Ísland mætir Svíþjóð í milliriðli á EM í handbolta á morgun. Íslenska liðið ætli að gera hlutina betur en þeir sænsku. „
Ég er bara ágætur. Auðvitað var maður svekktur eftir leik. Nú er bara undirbúningur hafinn fyrir Svíana og er bara spenntur,“ sagði Janus Daði fyrir æfingu landsliðsins í gær eftir tap fyrir Króötum degi fyrr. Klippa: Janus spenntur að mæta Svíum „Það er ákveðinn lærdómur sem við getum dregið af þessu og svo bara höldum við áfram,“ segir Janus um leikinn við Króata. Hvaða lærdóm má þá draga? „Að spila betri vörn og fá á okkur færri mörk. Það eru nokkrir puntkar hér og þar sem þarf að stilla til. Þá hef ég fulla trú á þessu,“ segir Janus. Svíþjóð spili allt öðruvísi leik en Króatarnir sem hægðu á leiknum við Ísland. Svíar geri þveröfugt. „Þetta er leikur á allt öðru tempoi. Svíarnir hlaupa eins og brjálæðingar. Þeir spila hraðar og skandinavískt yfirbragð. Ég myndi segja að þetta sé tvennt ólíkt,“ segir Janus. Hentar það Íslandi betur? „Já, ég held það. Við teljum að það henti okkur vel. Við tökum slaginn og ætlum að gera þetta betur en þeir,“ segir Janus. Janus deilir leikstjórnandastöðunni hjá Pick Szeged í Ungverjalandi með Jim Gottfridsson, sem gekk í raðir félagsins í sumar. Gottfridsson hefur verið burðarás í liði Svía undanfarin ár en hlutverk hans minna á mótinu í ár vegna góðrar spilamennsku Felix Claar sem stýrir leik Svíanna. „Hann er fínn. Svíar eru með tvo góða menn í öllum stöðum og sá sem deilir stöðu með honum er að spila mjög vel og þá eru minni mínútur á hann,“ segir Janus um Gottfridsson. Hvernig týpa er sá sænski? „Ég er búinn að vera með honum í liði í hálft ár. Hann er fínn liðsmaður og örugglega góður pabbi og eitthvað, þú veist,“ segir Janus léttur. En hver er lykillinn að sigri? „Geggjuð vörn, að keyra á hraðaupphlaup og passa upp á boltann.“ Viðtalið má sjá í spilaranum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Sjá meira