„Miklu betra lið en Króatía“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. janúar 2026 11:49 Ásgeir Örn er áhyggjufullur fyrir leik dagsins. „Við erum að tala um miklu betra lið en Króatía er með“ sagði fyrrum landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson í Besta sætinu þegar hann var spurður út í Svíþjóð, andstæðing Íslands á EM í dag.
Ísland verður að vinna Svíþjóð til að halda vonum sínum um undanúrslit á lífi en ljóst er að verkefnið verður erfitt. „Þeir eru með tvo frábæra markmenn, Andreas Palicka og Mikael Appelgren. Eric Johansson er þarna í skyttunni, svona skytta af gamla skólanum, hann er ekki af þessum nýja skóla sem hnoðast alveg endalaust. Hann er með rosa stökkkraft og skýtur alveg hrikalega fast Felix Claar er á miðjunni, hann spilar með Ómari Inga og Gísla Þorgeiri í Magdeburg. Það er töframaður með boltann, lítill, grannur og snöggur leikmaður. Virkilega góður... ...Svo eru þeir með tvær hægri skyttur þarna, Albin Lagergren og Lukas Sandell. Það er eiginlega enginn áberandi veikleiki í þeirra liði“ hélt Ásgeir áfram og taldi upp helstu hætturnar hjá Svíum, en sagði svo tækifæri vera fyrir Ísland sóknarlega. „Þeir spila þétta 6-0 vörn, sem er betra fyrir okkur ef við ætlum alltaf að brjótast í gegnum þá.“ Vill teikna allt upp á nýtt í vörninni Jóhann Gunnar Einarsson benti þá á að sóknarleikur Íslands hefði ekki verið vandamál hingað til, heldur þurfi vörnin að standa sig betur. Hann var með ýmsar hugmyndir um hvernig það gæti verið gert og myndi jafnvel gerast svo djarfur að hleypa Svíþjóð bara í dauðafæri. „Ég held að það þurfi bara að teikna allt upp á nýtt í vörninni. Finna einhverjar lausnir og jafnvel bara leggja planið þannig upp, að við fáum ekki skot á okkur fyrir utan [eins og varð Íslandi að falli gegn Króatíu.] Það er spurning, að fá bara ekki skot á okkur fyrir utan og gefa þá frekar sex metra færi, því Viktor Gísli er góður í að taka þessi dauðafæri.“ Besta sætið má finna í spilurunum að ofan en umræðan um Svíþjóð er undir lok þáttarins. Leikur Svíþjóðar og Íslands hefst klukkan 17:00 í dag og verður í beinni textalýsingu á Vísi, ásamt einkunnagjöf, tölfræðiskýrslu, myndasyrpu og annarri umfjöllun.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Sjá meira