Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Aron Guðmundsson skrifar 28. janúar 2026 12:00 Nicolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur tjáði sig um gagnrýni á keppnisfyrirkomulag EM í handbolta Vísir/Samsett Nikolaj Jacobsen sýnir gagnrýni á keppnisfyrirkomulag EM í handbolta, sem hefur komið frá mönnum eins og Degi Sigurðssyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, skilning en efast um að liðin í milliriðli eitt gagnist á fyrirkomulaginu. Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, sem er í milliriðli tvö ásamt íslenska landsliðinu gagnrýndi keppnisfyrirkomulagið á EM í viðtali eftir sigur Króata á Slóvenum í gær. „Það líða tuttugu og tvær klukkustundir á milli leikja hjá okkur. Ég þakka bara EHF fyrir,“ sagði Dagur með kaldhæðnislegum tón. „Þetta er ótrúlegt, það að við þurfum að spila tvo daga í röð, gjörsamlega ótrúlegt.“ Lið riðilsins þurfa að spila tvo leiki á tveimur dögum og þau sem fara áfram í undanúrslit þurfa svo að ferðast frá Malmö í Svíþjóð yfir til Herning í Danmörku þar sem að þau munu mæta liðum úr milliriðli eitt sem hefur verið spilaður þar, liðin spilað annan hvern dag og þurfa heldur ekkert að ferðast. Síðasta vika EM í handbolta: Mánudagur: Liðin í milliriðli eitt spila í Herning Þriðjudagur: Liðin í milliriðli tvö spila í Malmö Miðvikudagur: Liðin í báðum milliriðlum spila í Herning og Malmö Fimmtudagur: Frídagur fyrir liðin í milliriðli eitt sem spiluðu í Herning / Liðin í milliriðli tvö ferðast frá Malmö til Herning. Föstudagur: Undanúrslit í Herning sem og leikur um 5.sæti Laugardagur: Frídagur Sunnudagur: Úrslitaleikur EM í Herning sem og leikur um þriðja sætið. Gjörsamlega galið Ríkjandi heims- og ólympíumeistarar Danmerkur eru komnir áfram í undanúrslitin þar sem að þeir verða á heimavelli í Herning og hafa til þessa og munu spila alla leiki sína á mótinu þar. Þjálfari liðsins, Nicolaj Jacobsen, skilur að hluta til gagnrýnina á keppnisfyrirkomulag mótsins en veit ekki hvort það gefi liðum á borð við danska landsliðið forskot þegar komið er inn í undanúrslitin. „Þetta veitir okkur meiri hugarró en hvort þetta gefi okkur forskot veit ég ekki,“ sagði Nicolaj í samtali við TV 2 og bendir hann á að liðin í milliriðli Íslands hafi fengið meiri tíma til þess að undirbúa sig fyrir seinni stig mótsins. „Þau lið hófu keppni í milliriðlum degi seinna en við og hafa því haft meiri tíma til þess að undirbúa sig, ef þú snýrð þessu við.“ Sérfræðingur TV 2, Daniel Svensson, telur hins vegar að keppnisfyrirkomulagið geti haft mikil áhrif á komandi undanúrslitaleiki þar sem að liðin í milliriðli Íslands fái minni tíma í endurheimt samanborið við liðin í milliriðli Danmerkur. „Það er ósanngjarnt fyrir þau lið að spila tvo leiki á tveimur dögum, þurfa síðan að ferðast til Herning í Danmörku og spila svo undanúrslitaleik á föstudaginn. Það er gjörsamlega galið að setja fyrirkomulagið svona upp.“ Ísland getur með sigri gegn Slóveníu í dag komist í undanúrslit á EM í handbolta, í þriðja sinn í sögunni. Leikurinn hefst klukkan hálf þrjú og verður í beinni textalýsingu hér á Vísi. Upphitun er nú þegar hafin. EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, sem er í milliriðli tvö ásamt íslenska landsliðinu gagnrýndi keppnisfyrirkomulagið á EM í viðtali eftir sigur Króata á Slóvenum í gær. „Það líða tuttugu og tvær klukkustundir á milli leikja hjá okkur. Ég þakka bara EHF fyrir,“ sagði Dagur með kaldhæðnislegum tón. „Þetta er ótrúlegt, það að við þurfum að spila tvo daga í röð, gjörsamlega ótrúlegt.“ Lið riðilsins þurfa að spila tvo leiki á tveimur dögum og þau sem fara áfram í undanúrslit þurfa svo að ferðast frá Malmö í Svíþjóð yfir til Herning í Danmörku þar sem að þau munu mæta liðum úr milliriðli eitt sem hefur verið spilaður þar, liðin spilað annan hvern dag og þurfa heldur ekkert að ferðast. Síðasta vika EM í handbolta: Mánudagur: Liðin í milliriðli eitt spila í Herning Þriðjudagur: Liðin í milliriðli tvö spila í Malmö Miðvikudagur: Liðin í báðum milliriðlum spila í Herning og Malmö Fimmtudagur: Frídagur fyrir liðin í milliriðli eitt sem spiluðu í Herning / Liðin í milliriðli tvö ferðast frá Malmö til Herning. Föstudagur: Undanúrslit í Herning sem og leikur um 5.sæti Laugardagur: Frídagur Sunnudagur: Úrslitaleikur EM í Herning sem og leikur um þriðja sætið. Gjörsamlega galið Ríkjandi heims- og ólympíumeistarar Danmerkur eru komnir áfram í undanúrslitin þar sem að þeir verða á heimavelli í Herning og hafa til þessa og munu spila alla leiki sína á mótinu þar. Þjálfari liðsins, Nicolaj Jacobsen, skilur að hluta til gagnrýnina á keppnisfyrirkomulag mótsins en veit ekki hvort það gefi liðum á borð við danska landsliðið forskot þegar komið er inn í undanúrslitin. „Þetta veitir okkur meiri hugarró en hvort þetta gefi okkur forskot veit ég ekki,“ sagði Nicolaj í samtali við TV 2 og bendir hann á að liðin í milliriðli Íslands hafi fengið meiri tíma til þess að undirbúa sig fyrir seinni stig mótsins. „Þau lið hófu keppni í milliriðlum degi seinna en við og hafa því haft meiri tíma til þess að undirbúa sig, ef þú snýrð þessu við.“ Sérfræðingur TV 2, Daniel Svensson, telur hins vegar að keppnisfyrirkomulagið geti haft mikil áhrif á komandi undanúrslitaleiki þar sem að liðin í milliriðli Íslands fái minni tíma í endurheimt samanborið við liðin í milliriðli Danmerkur. „Það er ósanngjarnt fyrir þau lið að spila tvo leiki á tveimur dögum, þurfa síðan að ferðast til Herning í Danmörku og spila svo undanúrslitaleik á föstudaginn. Það er gjörsamlega galið að setja fyrirkomulagið svona upp.“ Ísland getur með sigri gegn Slóveníu í dag komist í undanúrslit á EM í handbolta, í þriðja sinn í sögunni. Leikurinn hefst klukkan hálf þrjú og verður í beinni textalýsingu hér á Vísi. Upphitun er nú þegar hafin.
Síðasta vika EM í handbolta: Mánudagur: Liðin í milliriðli eitt spila í Herning Þriðjudagur: Liðin í milliriðli tvö spila í Malmö Miðvikudagur: Liðin í báðum milliriðlum spila í Herning og Malmö Fimmtudagur: Frídagur fyrir liðin í milliriðli eitt sem spiluðu í Herning / Liðin í milliriðli tvö ferðast frá Malmö til Herning. Föstudagur: Undanúrslit í Herning sem og leikur um 5.sæti Laugardagur: Frídagur Sunnudagur: Úrslitaleikur EM í Herning sem og leikur um þriðja sætið.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira