Handbolti

Tölur á móti Slóvenum: Slóvenar með tólf fleiri tapaða og Ís­land 13-0 í hraða­upp­hlaupsmörkum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óðinn Þór Ríkharðsson fagnar einu af sjö mörkum sínum í dag en hann kveikti í íslenska liðinu með frábærum mörkum en einnig flottum og hugrökkum tilþrifum í vörninni.
Óðinn Þór Ríkharðsson fagnar einu af sjö mörkum sínum í dag en hann kveikti í íslenska liðinu með frábærum mörkum en einnig flottum og hugrökkum tilþrifum í vörninni. Vísir/Vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði sig inn í undanúrslitin með átta marka stórsigri á Slóveníu í lokaleik sínum í milliriðlinum á Evrópumótinu í handbolta 2026.

Íslenska landsliðið stakk af í seinni hálfleiknum með 6-2 spretti snemma í seinni hálfleik og eftir það var stressið í burtu og íslensku strákarnir léku sér að slóvenska liðinu út leikinn. Sigurinn var aldrei í hættu.

Hræðileg nýting úr dauðafærum var saga fyrri hálfleiks þar sem Miljan Vujovic varði átta dauðafæri frá íslensku strákunum auk þess sem eitt dauðafæri endaði í stönginni.

Sem betur fer pössuðu Slóvenar illa upp á boltann á móti. Þeir nýttu skotin sín sjötíu prósent í fyrri hálfleik en töpuðu níu boltum á meðan íslenska liðið tapaði engum bolta. Sú tölfræði hélt okkur á floti sem mótvægi við öll klúðrin úr dauðafærunum. Það er ekki oft sem Ísland er plús níu í töpuðum boltum í einum hálfleik.

Slóvenar fengu auk þess öll sex vítin sem voru dæmd í fyrri hálfleik og þau nýtti Domen Novak af öryggi. Sex af síðustu átta mörkum slóvenska liðsins í fyrri hálfleiknum komu úr vítaköstum.

Í seinni hálfleik héldu Slóvenar áfram að tapa boltanum og íslenska liðið refstaði ítrekað með mörkum úr hraðaupphlaupum og hröðum sóknum. Ísland var 13-0 yfir í hraðaupphlaupsmörkum og þvingaði alls fimmtán tapa bolta á meðan íslenska liðið tapaði aðeins þremur boltum allan leikinn. Í öllum þremur var boltinn dæmdur af íslensku strákunum. 

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki aðeins sjö mörk heldur fiskaði hann einnig þrjá ruðninga á Slóvenana.

Ómar Ingi Magnússon fór að hjálpa Gísla Þorgeiri Kristjánssyni við að sprengja upp varnarleik Slóvena en þeir komu saman af 23 mörkum íslenska liðsins. Ómar Ingi átti sinn besta leik á hárréttum tíma. Gísli bjó alls til fjórtán skotfæri en í sex þeirra klikkuðu liðfélagar hans í dauðafæri.

Markvarslan var ekki góð en liðið vann hvern boltann á fætur öðrum í vörninni og sýndi afburðasóknarleik eftir að strákarnir fóru að nýta betur dauðafærin.

Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum fyrsta leik Íslands á mótinu.

  • - Íslensku landsliðsmennirnir á móti Slóveníu á EM 2026-
  • Hver skoraði mest:
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 8
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 7
  • 2. Ómar Ingi Magnússon 7/2
  • 4. Orri Freyr Þorkelsson 4
  • 4. Janus Daði Smárason 3
  • 4. Bjarki Már Elísson 3
  • 7. Gísli Þorgeir Kristjánsson 2
  • 7. Haukur Þrastarson 2
  • -
  • Markahæstir í fyrri hálfleik:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 3
  • 1. Bjarki Már Elísson 3
  • 1. Ómar Ingi Magnússon 3
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 3
  • 5. Janus Daði Smárason 2
  • 5. Haukur Þrastarson 2
  • -
  • Markahæstir í seinni hálfeik:
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 5
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 4
  • 2. Ómar Ingi Magnússon 4/2
  • 2. Orri Freyr Þorkelsson 4
  • -
  • Hver varði flest skot:
  • 1. Viktor Gísli Hallgrímsson 11 (28%)
  • 2. Björgvin Páll Gústavsson 0 (0%)
  • -
  • Hver spilaði mest í leiknum:
  • 1. Viktor Gísli Hallgrímsson 55:37
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 53:38
  • 3. Janus Daði Smárason 52:55
  • 4. Ómar Ingi Magnússon 52:34
  • 5. Elliði Snær Viðarsson 47:09
  • 6. Orri Freyr Þorkelsson 41:04
  • -
  • Hver skaut oftast á markið:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 9
  • 1. Ómar Ingi Magnússon 9/2
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 9
  • 4. Orri Freyr Þorkelsson 6
  • 5. Janus Daði Smárason 5
  • 5. Bjarki Már Elísson 5
  • 5. Haukur Þrastarson 5
  • -
  • Hver gaf flestar stoðsendingar:
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 8
  • 2. Janus Daði Smárason 6
  • 2. Ómar Ingi Magnússon 6
  • 4. Óðinn Þór Ríkharðsson 1
  • 4. Viggó Kristjánsson 1
  • 4. Viktor Gísli Hallgrímsson 1
  • 4. Elliði Snær Viðarsson 1
  • 4. Orri Freyr Þorkelsson 1
  • 4. Haukur Þrastarson 1
  • -
  • Hver átti þátt í flestum mörkum:
  • (Mörk + Stoðsendingar)
  • 1. Ómar Ingi Magnússon 13
  • 2. Gísli Þorgeir Kristjánsson 10
  • 3. Janus Daði Smárason 9
  • 3. Elliði Snær Viðarsson 9
  • 5. Óðinn Þór Ríkharðsson 8
  • 6. Orri Freyr Þorkelsson 5
  • 7. Bjarki Már Elísson 3
  • 7. Haukur Þrastarson 3
  • -
  • Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz):
  • 1. Ýmir Örn Gíslason 7
  • 2. Janus Daði Smárason 5
  • 3. Elliði Snær Viðarsson 4
  • 4. Óðinn Þór Ríkharðsson 1
  • 4. Orri Freyr Þorkelsson 1
  • 4. Ómar Ingi Magnússon 1
  • -
  • Mörk skoruð í tómt mark
  • 1. Orri Freyr Þorkelsson
  • 1. Elliði Snær Viðarsson
  • -
  • Hver tapaði boltanum oftast:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 1
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 1
  • 1. Arnar Freyr Arnarsson 1
  • -
  • Flest varin skot í vörn:
  • 1. Janus Daði Smárason 1
  • -
  • Hver fiskaði flest víti:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 1
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 1
  • 1. Ómar Ingi Magnússon 1
  • -
  • Hver fiskaði flesta brottrekstra:
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 2
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 1
  • 2. Bjarki Már Elísson 1
  • 2. Ómar Ingi Magnússon 1
  • -
  • Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):
  • 1. Ómar Ingi Magnússon 10,0
  • 2. Gísli Þorgeir Kristjánsson 10,0
  • 3. Elliði Snær Viðarsson 9,11
  • 4. Janus Daði Smárason 8,84
  • 5. Óðinn Þór Ríkharðsson 8,54
  • -
  • Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):
  • 1. Janus Daði Smárason 9,46
  • 2. Ýmir Örn Gíslason 7,73
  • 3. Orri Freyr Þorkelsson 6,61
  • 4. Elliði Snær Viðarsson 6,43
  • 5. Ómar Ingi Magnússon 6,11
  • -
  • - Hvaðan komu flest mörk íslenska liðsins í leiknum -
  • 3 með langskotum
  • 9 með gegnumbrotum
  • 8 af línu
  • 6 úr hægra horni
  • 13 úr hraðaupphlaupum (4 með seinni bylgju)
  • 2 úr vítum
  • 2 úr vinstra horni
  • -
  • Skotnýting íslenska liðsins í leiknum
  • 50% úr langskotum
  • 56% úr gegnumbrotum
  • 89% af línu
  • 62% úr hornum
  • 67% úr vítum
  • -
  • - Plús & mínus kladdinn í leiknum -
  • Mörk með langskotum: Slóvenía +6
  • Mörk af línu: Ísland +1
  • Mörk úr hraðaupphlaupum: Ísland +13
  • Tapaðir boltar: Slóvenía +12
  • Fiskuð víti: Slóvenía +5
  • Varin skot markvarða: Slóvenía +6
  • Varin víti markvarða: Slóvenía +1
  • -
  • Misheppnuð skot: Ísland +5
  • Löglegar stöðvanir: Ísland +1
  • Refsimínútur: Jafnt (10-10)
  • -
  • Mörk manni fleiri: Jafnt (6-6)
  • Mörk manni færri: Jafnt (3-3)
  • Mörk í tómt mark: Ísland +2
  • -
  • - Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -
  • Fyrri hálfleikurinn:
  • 1. til 10. mínúta: Jafnt (5-5)
  • 11. til 20. mínúta: Ísland +1 (6-5)
  • 21. til 30. mínúta: Ísland +1 (7-6)
  • Seinni hálfleikurinn:
  • 31. til 40. mínúta: Ísland +3 (7-4)
  • 41. til 50. mínúta: Ísland +1 (5-4)
  • 51. til 60. mínúta: Ísland +2 (9-7)
  • -
  • Byrjun hálfleikja: Ísland +3
  • Lok hálfleikja: Ísland +3
  • Fyrri hálfleikur: Ísland +2 (18-16)
  • Seinni hálfleikur: Ísland +5 (21-15)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×