Snorri horfir lengra: „Förum ekki í undanúrslit EM til þess að vera farþegar þar“ Aron Guðmundsson skrifar 28. janúar 2026 16:58 Snorri Steinn ákveðinn á hliðarlínunni. Hann er stoltur af drengjunum sínum Vísir/Vilhelm Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands var stoltur af sínum mönnum eftir að sæti í undanúrslitum EM var í höfn. Snorri er búinn að horfa lengra en það og segir sína menn ekki ætla að vera farþega á þessum stað í mótinu. „
Ótrúleg frammistaða hjá mínum mönnum í dag,“ sagði Snorri Steinn í viðtali hjá Henry Birgi eftir sigur á Slóvenum sem tryggði sætið í undanúrslitum. Klippa: Snorri stoltur: „Fann að það var eitthvað þarna“ „Það er bara mjög erfitt að lýsa tilfinningunum. Ég þarf kannski aðeins að losna héðan, setjast niður með sjálfum mér og reyna að ná utan um þetta. Auðvitað er þetta risastórt fyrir okkur. Strákarnir eru margir búnir að vera lengi í þessu landsliði, búnir að stefna að þessu lengi og maður hefur fundið það hversu erfitt það hefur verið að komast í undanúrslit. Ég er gríðarlega ánægður með þá og stoltur af þeim. Frammistaðan var frábær í þessum leik.“ Fyrir mót var mikið talað um að leiðin í undanúrslit væri greið. Snorri segir aldrei auðvelt að komast í undanúrslit. „Það er bara nóg fyrir okkur að kíkja í sögubækurnar til að sjá það. Þetta hefur verið erfitt hjá okkur. Allt umtal og pressa hefur alltaf einhver áhrif en mér finnst strákarnir hafa verið frábærir í þessu. Ég skynjaði bara mjög sterkt í byrjun undirbúningsins hjá okkur, fyrir þetta mót, mikla einbeitingu og ég fann að það var eitthvað þarna. Það er kannski ástæðan fyrir því að við erum komnir þetta langt.“ Ég vænti þess að þetta hafi verið eitt af markmiðunum, að komast í undanúrslit, en varstu búinn að horfa lengra? „Já ég er búinn að því. Þú ferð ekki í undanúrslit og ætlar þér að enda í þriðja sæti. Það bara virkar ekkert þannig. Ég ætla nú kannski ekki að fara lofa einhverju, við þurfum bara að sjá hverja við fáum í undanúrslitum og annað slík. Við þurfum líka bara að sýna ákveðna auðmýkt, yfirvegun og ná okkur niður. Við erum ekki að fara í undanúrslit á EM til þess að vera einhverjir farþegar. Það bara segir sig sjálft. Við erum með frábært lið og getum náð lengra. Ég hef ekki áhyggjur af því að það verði ekki alvöru fókus hjá okkur á því. Það verða væntanlega lið þarna sem þekkja þetta betur en við, og við þurfum að sýna því virðingu en trúin á okkur hefur ekki minnkað.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Sjá meira