„Ætla ekkert að fara að fela mig á bak við það“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. janúar 2026 21:45 Janus Daði Smárason skoraði átta mörk fyrir Ísland í kvöld. Vísir/Vilhelm „Ég er bara sár og svekktur. Tómur aðeins núna svona stuttu eftir leik,“ sagði Janus Daði Smárason eftir svekkjandi tap Íslands gegn Dönum í undanúrslitum EM í handbolta í kvöld. „
Það er hægt að tína einhver atriði til hér og þar. Þetta var bara góður handboltaleikur og Danirnir því miður enda með fleiri mörk en við,“ bætti Janus við. Danska vörnin gerði íslensku strákunum erfitt fyrir í kvöld og var til að mynda með um tvöfalt fleiri lögleg stopp en íslenska vörnin. En hvað veldur þessum mun? „Danirnir halda boltanum kannski aðeins betur á lífi og við höfum líka bara verið góðir í hinu á mótinu. Það var pottþétt eitthvað móment í leiknum þar sem við hefðum átt að láta boltann vinna betur fyrir okkur. Það er bara eins og það er.“ Þá segir Janus að það sé gríðarlega erfitt að eiga við danska liðið. „Það krefst rosa orku og einbeitingar. Þeir held ég að sé best spilandi sóknarlið í Evrópu. Mér fannst við leysa það mjög vel á köflum. Það vantaði bara hársbreidd upp á í dag. Ég er bara svekktur.“ Janus vildi hins vegar alls ekki tjá sig um dómgæslu leiksins, sem oft og tíðum var hægt að setja spurningamerki við. „Ég bara ætla ekki að tala um það,“ sagði Janus einfaldlega. Hann gaf einnig heldur ekki mikið fyrir það að það hafi verið erfitt fyrir íslenska liðið að spila fyrir framan fulla höll af Dönum. „Það gefur örugglega Dönunum orku, en það var bara geggjað að spila þennan leik og ég held að það gefi okkur líka að heyra aðeins í Dönunum. Þannig það er eitthvað sem ég ætla ekkert að fara að fela mig á bak við það.“ Að lokum segir Janus að íslenska liðið geti ekki neitað því að Danir hafi verið of stór biti fyrir Ísland í dag. „Við unnum allavega ekki þannig að akkúrat í dag náðum vuð ekki að svara því,“ sagði Janus að lokum. Klippa: Janus Daði eftir tapið gegn Dönum
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira