„Allt til staðar svo að þetta lið geti barist við Dani um gull“ Aron Guðmundsson skrifar 31. janúar 2026 00:17 Svekkjandi úrslit gegn Dönum þegar Strákarnir okkar voru komnir svo nálægt úrslitaleiknum á EM. Nú er bara að taka bronsið Vísir/Vilhelm Sérfræðingar Besta sætisins segja reynslu kvöldsins í tapleik í undanúrslitum EM gegn ríkjandi heims- og ólympíumeisturum Dana, vörðu á leið Strákana okkar sem hafi allt til alls til þess að berjast um gullmedalíur við Danina á komandi árum.
Strákarnir okkar sýndu fram á hetjulega baráttu í Boxen í kvöld gegn ógnarsterku liði Danmerkur sem spilaði á heimavelli fyrir framan tæplega 15 þúsund Dani. Leikurinn tapaðist með þremur mörkum, 31-28, og var jafn lengi vel en Danirnir, með Mathias Gidsel, sýndu sín gæði undir lokin og bókuðu sér farmiða í úrslitaleikinn gegn Þjóðverjum Alfreðs Gíslasonar. Þeir Einar Jónsson og Rúnar Kárason, sérfræðingar Besta sætisins, gátu vissulega týnt til eitt og annað við leik íslenska liðsins sem hægt væri að gera betur en það er raunin með alla leiki. Stóri punkturinn er sá að liðið er á réttri leið undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar. „Maður er alltaf einhvern veginn að sjá bætingu,“ sagði Einar Jónsson. „Við gerðum margt svo ótrúlega vel í þessum leik, það eru ótrúlega mikil þroskamerki á þessu liði.“ Tilfinningin núna sé súr, því íslenska liðið var grátlega nálægt úrslitaleiknum en frá þessu tapi verður hægt að taka mikla reynslu. „Á þessu móti spilum við tvo svona leiki, næsti leikur á móti Króötum um bronsið er sama dæmið. Svo förum við á næsta mót, bætum við leikjum þar og svo bara vex þetta.“ Við sjáum aðeins toppinn á ísjakanum núna. „Því þetta lið er á góðum stað, það er allt til alls, menn eru á góðum aldri. Það er allt til staðar svo þetta lið verði að berjast við Danina um gullmedalíur. Svona ef við förum aðeins fram úr sjálfum okkur hérna,“ bætti Einar við. Nýafstaðni undanúrslitaleikurinn, á útivelli gegn ríkjandi heims- og ólympíumeisturunum, besta liði í heimi undanfarin ár, sé besti skóli sem Strákarnir okkar geti fengið á þessum tímapunkti. „Auðvitað hefði verið geðveikt að vinna þetta, frábært og allt það en þetta er líka stór varða á þessari vegferð, við verðum bara reynslunni ríkari eftir þennan leik og þetta mót. “ Hægt er að hlusta á yfirferð Besta sætisins á leik Íslands og Danmerkur og meira til í spilaranum hér fyrir ofan eða í gegnum hlaðvarpsveitur hér fyrir neðan.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira