Handbolti

Danir láta Gísla heyra það eftir gagn­rýni: „Haltu kjafti Ís­land“

Aron Guðmundsson skrifar
Gísli Þorgeir í mikilli baráttu við varnarmenn danska landsliðsins.
Gísli Þorgeir í mikilli baráttu við varnarmenn danska landsliðsins. Vísir/Vilhelm

Fjallað er um gagnrýni íslenska landsliðsmannsins Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í garð dómara undanúrslitaleiksins gegn Dönum á danska miðlinum TV 2 núna í morgun og ekki eru allir á eitt sammála honum í þeim efnum.

Í viðtali bæði við Vísi sem og TV 2 eftir leik gagnrýndi Gísli Þorgeir norska dómaraparið sem sá um að dæma undanúrslitaleikinn gegn Dönum í Boxen.

„Það þarf allt að vera fullkomið á móti svona liði eins og Danmörku, en það var það ekki. Við brennum fjórum vítum, sem er ótrúlega mikið á móti svona sterku liði og þeir refsa í hvert skipti sem við skorum ekki. Það er það fyrsta sem kemur upp í hausinn en svo eru margar ákvarðanir hjá dómurunum sem ég á erfitt með að lifa með“ sagði Gísli í viðtali við Val Pál Eiríksson eftir leikinn í gær.

Vildi Gísli meina að íslenska liðið fengi oft á tíðum ekki að spila handbolta sökum ákvarðana dómara leiksins.

„Það var líka mín tilfinning að þær ákvarðanir hafi farið þeirra megin í dag. Það svíður auðvitað mikið því mér fannst við verðskulda meira.“

Gísli var á sömu nótum í viðtali við TV 2 í Danmörku en danski miðillinn hefur deilt fréttinni á samfélagsmiðlum og þar standa Danir ekki á sínum skoðunum.

„Sárir taparar,“ skrifar einn og segir íslenska viðhorfið hafa skinið í gegn allan leikinn. Þegar að vel hafi gengið lék allt í lyndi en um leið og liðið missti tökin hafi dómaranum verið kennt um.

„Danirnir hefðu auðveldlega getað unnið með 5-6 mörkum ef þeir hefðu lagt meiri þunga með sóknarleik sínum síðustu 3-4 mínúturnar.“

Aðrir eru á því að Strákarnir okkar hafi sloppið vel frá verkefninu miðað við hörkuna sem þeir sýndu í leiknum.

„Haltu kjafti Ísland og reynið að spila án þess að hjóla í andstæðinginn...Það sem þið sýnduð í gær er skandall fyrir handboltann.“


Tengdar fréttir

Tekur Gísli of mikið pláss frá Ómari?

Sérfræðingar Besta sætisins eru á því að finna þurfi jafnvægið á milli Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og Ómars Inga Magnússonar í leik íslenska landsliðsins. Þegar að það náist geti farið að horfa í að vinna till gullverðlauna á stórmóti. 

Sjáðu myndirnar: Blá krækiber í helvíti

Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar um bronsið á Evrópumótinu í handbolta eftir þriggja marka tap á móti Dönum í undanúrslitaleiknum í gærkvöldi. Hér má sjá myndir frá leiknum.

„Allt til staðar svo að þetta lið geti barist við Dani um gull“

Sérfræðingar Besta sætisins segja reynslu kvöldsins í tapleik í undanúrslitum EM gegn ríkjandi heims- og ólympíumeisturum Dana, vörðu á leið Strákana okkar sem hafi allt til alls til þess að berjast um gullmedalíur við Danina á komandi árum.

Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“

Danska stórskyttan Simon Pytlic skoraði fimm mörk fyrir Dani í sigrinum á Íslandi í undanúrslitum EM í kvöld og hann var öflugur á lokasprettinum í leiknum þegar danska liðið landaði sigrinum. Pytlick hrósaði íslenska liðinu eftir leik.

Skýrsla Henrys: Strákarnir okkar eru orðnir stórir

Draumurinn um gull á EM er dáinn en draumurinn um verðlaun lifir. Ísland mun spila um bronsverðlaun á sunnudaginn eftir tap, 31-28, gegn frábæru liði Dana. Frammistaða strákanna okkar var þó hetjuleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×