Handbolti

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu

Íþróttadeild Sýnar skrifar
Ómar Ingi Magnússon skoraði tólf mörk í bronsleiknum og var með hundrað prósent skotnýtingu.
Ómar Ingi Magnússon skoraði tólf mörk í bronsleiknum og var með hundrað prósent skotnýtingu. vísir/vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun fyrir Króatíu, 33-34, í leiknum um bronsið á EM í dag. Íslendingar voru nær allan tímann í eltingarleik en áttu gott áhlaup undir lok leiks sem dugði þó ekki til. Of mörg dauðafæri fóru í súginn og markvarslan var takmörkuð framan af leik.

Þetta var annað eins marks tap Íslands fyrir Króatíu á þessu mótinu og þriðja tapið fyrir Króötum á stórmóti á einu ári.

Íslendingum voru mislagðar hendur í færunum sínum í upphafi leiks. Sex dauðafæri fóru í súginn á fyrstu átta mínútum. Á meðan skutu Króatar okkar menn í kaf eins og þeir gerðu í fyrri tveimur leikjunum.

Viktor Gísli Hallgrímsson náði sér engan veginn á strik í íslenska markinu en Björgvin Páll Gústavsson átti góða innkomu. Króatar leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 14-17.

Ísland minnkaði muninn í 16-18 en Króatía skoraði næstu þrjú mörk og náði fimm marka forskoti, 16-21. Króatar voru með góða stjórn á leiknum og náðu mest sex marka forskoti, 23-29.

Þá tók íslenska liðið við sér og fór að minnka muninn. Viktor kom aftur í markið og varði tvö víti á lokamínútunum. Tíðar brottvísanir gerðu Íslandi þó erfitt fyrir og þá fékk Viggó Kristjánsson rauða spjaldið eftir sjö mínútna leik í seinni hálfleik. Óðinn Þór Ríkharðsson minnkaði muninn í 30-32 en Marin Jelinic svaraði að bragði, 30-33. Á endanum munaði einu marki á liðunum, 33-34.

Fyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon skoraði tólf mörk, þar af tíu úr vítaköstum, og var með hundrað prósenta skotnýtingu. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk. 

Niðurstaða íslenska liðsins á mótinu er því 4. sæti sem er besti árangur þess á stórmóti síðan það vann bronsið á EM 2010.

Einkunnir Íslands gegn Króatíu: 

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 2 (6/2 varin skot - 25:43 mín.) Þriðja leikinn í röð gegn Króötum skoruðu þeir ítrekað með skotum utan af velli án þess að Viktor fengi neitt við ráðið. Fór af velli þegar tæpar tuttugu mínútur voru liðnar og Björgvin tók stöðu hans. Viktor kom aftur inn í markið undir lokin og gaf íslenska liðinu von með því að verja tvö vítaköst. Viktor átti tvo góða leiki á EM en getur og verður að gera miklu betur en hann sýndi á mótinu.

Bjarki Már Elísson, vinstri hornamaður - 4 (4 mörk - 51:30 mín.) Spilaði allan leikinn. Skaut í stöngina úr fyrsta skotinu sínu en nýtti hin fjögur færin sín. Elsti útileikmaðurinn í íslenska hópnum sýndi að hann hefur enn fullt fram að færa.

Janus Daði Smárason, vinstri skytta - 2 (1 mark - 38:10 mín.) Spilaði frábærlega í undanúrslitaleiknum gegn Danmörku en náði sér ekki á strik í dag. Klikkaði á opnu færi snemma leiks og fann ekki rétta taktinn, hvorki í vörn né sókn.

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 4 (6 mörk - 38:24 mín.) Eins og áður í mótinu mæddi mikið á Gísla. Gaf allt í leikinn og réðist hvað eftir annað á króatísku vörnina. Skoraði sex mörk en hefði mátt nýta færin sín betur. Gaf fimm stoðsendingar og sótti fjögur víti. Langbesta stórmót Gísla með landsliðinu.

Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 5 (12/10 mörk - 37:03 mín.) Sýndi ótrúlegt öryggi á vítalínunni. Skoraði úr öllum tíu vítunum sínum og sýndi stáltaugar hvað eftir annað. Fiskaði sjálfur þrjú víti en hefði kannski mátt reyna meira utan af velli. Fékk tvær brottvísanir í fyrri hálfleik og spilaði lítið í vörninni í þeim seinni. Ómar óx vel inn í mótið og endaði sem einn markahæsti maður þess.

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 4 (5 mörk - 49:29 mín.) Spilaði að venju allan leikinn og skoraði fimm mörk. Eflaust svekktur með skotin þrjú sem hann klikkaði á en Óðinn skilaði sínu eins og hann gerði allt mótið.

Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 2 (2 mörk - 50:37 mín.) Eftir þrjá frábæra leiki í röð átti Elliði algjöran slakan leik í dag. Fékk þrjú dauðafæri á fyrstu þremur mínútum leiksins en brenndi af þeim öllum. Það reyndist rándýrt. Endaði með tvö mörk úr sex skotum, greip ekki tvær línusendingar og var ekki góður í vörninni. Elliði er íslenska liðinu gríðarlega mikilvægur en þetta var ekki hans dagur.

Ýmir Örn Gíslason, varnarmaður - 3 (0 mörk - 34:18 mín.) Átti í vandræðum í vörninni eins og í fyrri leiknum gegn Króatíu. Reyndi hvað hann gat að rífa íslenska liðið áfram en Íslendingar náðu aldrei að þétta vörnina nógu vel.

- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Arnar Freyr Arnarsson, línumaður - 3 (1 mark - 8:14 mín.) Spilaði ekki mikið en skoraði úr eina skotinu sem hann tók. Hafði ekki mikil áhrif á mótið.

Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 2 (0 mörk - 9:16 mín.) Eftir stórleikinn gegn Svíum fjaraði undan Viggó á mótinu. Spilaði lítið í dag enda fékk hann rautt spjald snemma í seinni hálfleik.

Haukur Þrastarson, vinstri skytta - 3 (2 mörk - 21:03 mín.) Sumt gott, sumt ekki jafn gott hjá Hauki í dag. Tapaði boltanum einu sinni í seinni hálfleik og fékk svo klaufalega brottvísun en átti sinn þátt í endurkomu íslenska liðsins. Maður vill alltaf sjá meira til Hauks en staðan á honum er mun betri en fyrir ári síðan og vonandi lætur hann meira til sín taka í landsliðinu.

Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaður - 3 (0 mörk - 9:18 mín.) Kom með nýja vídd í íslenska varnarleikinn og átti sinn þátt í hleypa leiknum upp undir lokin.

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - 4 (9 varin skot - 29:09 mín.) Minnti á sig með góðri innkomu í dag. Allt annað að sjá Björgvin en í fyrri leiknum gegn Króatíu. Varði níu skot, eða 35 prósenta þeirra skota sem hann fékk á sig.

Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - (spilaði ekkert)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, hægri hornamaður - (spilaði ekkert)

Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - (spilaði ekkert)

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Sýnar leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Leikmenn fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Útskýring á einkunnum

  • 6 - Heimsklassa frammistaða
  • 5 - Frábær frammistaða
  • 4 - Góð frammistaða
  • 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu
  • 2 - Ekki nógu góð frammistaða
  • 1 - Slakur leikur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×