„Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. febrúar 2026 16:30 Ómar Ingi Magnússon var markahæsti maður íslenska liðsins í dag. Vísir/Vilhelm „Við bara gerðum ekki nógu vel,“ sagði Ómar Ingi Magnússon eftir súrt tap Íslands gegn Króatíu í bronsleik EM í handbolta í dag. „
Við náðum ekki að spila okkar leik og vorum að elta allan tímann. Það er erfitt. Við náum aldrei góðu mómentum í leiknum.“ Þetta var annað tap Íslands gegn Króatíu á þessu móti, en Ómar hefur engar sérstakar skýringar á því afhverju íslenska liðið á í vandræðum með það króatíska. „Ég veit það ekki. Mér fannst bara vanta 10-15 prósent á öllum sviðum og við náum einhvernveginn ekki að leysa það sem þeir voru að gera.“ Þá segir Ómar að liðið hefði viljað meira á mótinu, þó fjórða sæti sé vissulega góður árangur. „Já, klárlega. Það er auðvitað frábært að komast í undanúrslit, en við vildum auðvitað bæði vinna Danina og í dag, en það gekk ekki. Það er klárlega skref í rétta átt að fara í undanúrslit, en við getum bætt okkur helling og þurfum að gera það. Það er samt sem áður gott að komast í þessa lokahelgi finns mér og ég held að það muni gefa okkur helling.“ En hvaða skref þarf íslenska liðið að taka til að komast lengra? „Mér finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar og vera stöðugri. Þetta er of mikið upp og niður og mikill mismunur á leikjunum. Ég veit ekki hvort það sé hausinn eða einhvern tæknileg atriði. Við þurfum að skoða það aðeins,“ sagði Ómar að lokum. Klippa: Ómar Ingi eftir tapið gegn Króötum
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira