„Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. febrúar 2026 16:44 Snorri Steinn á hliðarlínunni í leik dagsins. Vísir/Vilhelm „Ég er náttúrulega eðlilega bara súr og svekktur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Króatíu í bronsleik EM í dag. „
Við vorum að spila um medalíu og við náðum því ekki þannig það segir sig bara sjálft. Það vantaði aðeins upp á í dag og við vorum að elta Króatana allan leikinn. Kannski besta lið í heimi að stjórna leikjum og þess vegna fórum við aðeins í það að reyna að mölva upp leikinn. Ég fékk hann svo sem í þann farveg sem ég vildi.“ „Það er auðvelt að líta til baka og horfa á að það eru ábyggilega tíu frábær færi sem fara í súginn og það er helvíti dýrt í leik eins og þessum.“ Þá var Snorri alveg með það á hreinu hvað veldur því að íslenska liðið á í stökustu vandræðum með það króatíska. „Eru þeir ekki bara góðir? Þeir voru í öðru sæti í fyrra á HM og þriðja sæti núna þannig það er kannski ein skýringin. Við erum að tapa tveimur leikjum á móti þeim með einu marki. Við erum ekki lengra frá þeim en það.“ „Við ætluðum aðeins að fara framar, en þá fundu þeir línuna og þá varð aftur eitthvað svona óöryggi. Ég er óánægður með nokkur atriði, sérstaklega í fyrri hálfleik varnarlega. Atriði sem við ætluðum bara að loka, en vorum ekki að gera nægilega vel. Það er mjög fúlt, en bara eins og gengur og gerist. Strákarnir eru samt búnir að vera frábærir og ég get ekki beðið um neitt meira frá þeim.“ En hvernig metur Snorri mótið í heild sinni? „Akkúrat núna er ég bara fúll. Það segir sig bara sjálft. Við ætluðum okkur meira, en auðvitað er þetta skref fram á við. Liðið er búið að yfirstíga fullt af hindrunum á þessu móti og sýna gríðarlegan karakter. En við breytum því ekki að vonbrigðin eru mikil.“ Að lokum segist hann ætla að skoða það hvaða skref liðið þarf að taka til að komast enn lengra. „Það er ábyggilega bara eitt og annað, ég kíki bara á það í rólegheitum. Ég er ekki með eitthvað eitt svar við því. Við þurfum bara að halda áfram að reyna að þróa okkur og bæta okkur því okkur langar í meira og ég held að við höfum sýnt það að það er innistæða fyrir því.“ Klippa: Snorri Steinn eftir tapið gegn Króötum
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira