„Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. febrúar 2026 16:58 Bjarki Már Elísson var niðurlútur í leikslok. Vísir/Vilhelm „Þetta er bara ótrúlega svekkjandi,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í bronsleik EM gegn Króötum í dag. „
Við gerðum bara ekki nóg í dag og þurfum að borga fyrir það með tapi.“ Íslenska liðið byrjaði leikinn illa og klikkaði á mikið af dauðafærum, sem varð til þess að strákarnir voru að elta Króata allan leikinn. „Ég veit ekki hvort það sé hægt að tala um andlegan styrk eða hvað vantar. Við bara skorum ekki í byrjun og á móti svona liði þá máttu bara ekkert missa þá fram úr þér. Þá bara byrja þeir að spila þennan viðbjóð sem þeir gera. Labba upp og hægja á leiknum. Við lærum greinilega ekki okkar lexíu með það. Við erum búnir að spila þrisvar við þá og þetta hefur alltaf verið eins.“ Þá segir Bjarki að þetta tap hafi verið extra súrt, hafandi verið lengi í landsliðinu og aldrei jafn nálægt því að vinna til verðlauna. „Já, það bara segir sig sjálft. Ég sá fyrir mér að ná í medalíu í dag, en það varð ekki.“ En hvað þarf liðið að gera til að taka næsta skref að mati Bjarka? „Við þurfum bara að halda áfram á þessari vegferð. Við erum búnir að taka skref síðustu tvö ár myndi ég segja. Síðasta mót var náttúrulega eins og það var með þarna milliriðladæmið og núna förum við í undanúrslit. Kannski þurfum við bara að fara lengstu leið í heimi að þessari medalíu, en á meðan við erum á þessum mótum þá höldum við bara áfram að trúa og gefum allt sem við eigum,“ sagði Bjarki að lokum Klippa: Bjarki Már eftir tapið gegn Króötum
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Fleiri fréttir Biður Dag afsökunar Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona „Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu „Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Sigvaldi kemur inn fyrir Teit Allir trúa á brons í Herning Hjartað og andinn muni skila sigri Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Gísli valinn í úrvalslið EM „Held og vona að Ísland taki bronsið“ Sér fyrir sér bronsverðlaun um hálsinn Sigvaldi skráður til leiks Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima „Bæði lið eru á felgunni“ Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja Sigurganga Blomberg-Lippe heldur áfram EM í dag: Meira EHF bras og Danir í forgangi Segir Dag hafa beðist afsökunar Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Sjá meira