Handbolti

Gísli Þor­geir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa oftast komist í úrvalslið stórmóta en Gísli Þorgeir Kristjánsson komst þangað í fyrsta sinn á Evrópumótinu í ár.
Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa oftast komist í úrvalslið stórmóta en Gísli Þorgeir Kristjánsson komst þangað í fyrsta sinn á Evrópumótinu í ár. Vísir/VilhelmGetty/ Srdjan Stevanovic/timarit.is

Gísli Þorgeir Kristjánsson varð fimmtándi fulltrúi Íslands í úrvalsliði stórmóts í handbolta karla þegar hann var valinn í úrvalslið Evrópumótsins í handbolta í gær. Aðeins níu aðrir íslenskir leikmenn hafa náð þessu. 

Ísland hafði áður átt sex fulltrúa í úrvalsliði Evrópumóts. Þar af áttu Ólafur Stefánsson (3) og Guðjón Valur Sigurðsson (2) fimm af þeim sex útnefningum en Viktor Gísli Hallgrímsson var sá síðasti á undan Gísla til að komast í úrvalslið EM. Viktor Gísli var í úrvalsliði EM fyrir fjórum árum.

Það er enginn miskunn þótt að þú sért besti leikstjórnandi Evrópumótsins.Vísir/Vilhelm

Gísli Þorgeir átti magnað Evrópumót og var potturinn og pannan í sóknarleik íslenska liðsins á mótinu. Hann er aðeins annar Íslendingurinn sem er valinn í úrvalslið sem leikstjórnandi og sá fyrsti í sautján og hálft ár eða síðan Snorri Steinn Guðjónsson var valinn í úrvalsliðið á Ólympíuleikunum í Peking 2008.

Gísli endaði með 34 mörk og gaf flestar stoðsendingar allra á mótinu eða 62. Gísli kom alls að 96 mörkum með beinum hætti í leikjunum níu eða að meira en tíu mörkum í hverjum leik. Í tölfræði EM eru stoðsendingar bæði stoðsendingar og fiskuð víti sem gefa mörk en enginn fiskaði fleiri víti í mótinu en Gísli. Leikstjórnandi íslenska landsliðsins fiskaði alls 25 víti á þessu móti.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit með öllum löndum Gísla sem hafa staðið sig svo vel á stórmóti með íslenska landsliðinu að þeir voru valdir í úrvalslið mótsins.

Tímarit.is/Morgunblaðið

HM í Svíþjóð 1993

Bjarki Sigurðsson, hægra horn

Bjarki var fyrsti Íslendingurinn til að komast í úrvalslið á stórmóti þegar hann var valinn í hornið í úrvalsliði HM 1993. Ísland endaði í áttunda sæti á mótinu og vann aðeins þrjá af sjö leikjum sínum en Bjarki heillaði alla með frábærri frammistöðu sinni í hægra horninu. Valdimar Grímsson, einn markahæsti leikmaðurinn á Ólympíuleikunum ári áður, meiddist fyrir mótið og Bjarki kom sterkur inn í forföllum hans.

Tímarit.is/Morgunblaðið

HM á Íslandi 1995

Geir Sveinsson, lína

Tveimur árum síðar átti Ísland aftur leikmann í úrvalsliði heimsmeistaramóts þegar landsliðsfyrirliðinn Geir Sveinsson var valinn á línuna í liðinu. Íslenska landsliðið olli miklum vonbrigðum og náði aðeins fjórtánda sæti á heimavelli en Geir sprakk úr sem sóknarmaður. Alltaf traustur í vörninni en þarna fór hann líka á kostum í sóknarleiknum, skoraði 26 mörk af línunni og nýttu 74 prósent skota sinna.

Tímarit.is/Morgunblaðið

HM í Kumamoto 1997

Valdimar Grímsson, hægra horn

Ísland átti fulltrúa í úrvalsliðinu á þriðja heimsmeistaramótinu í röð þegar Valdimar var valinn í úrvalsliðið á HM í Japan 1997 þar sem íslenska liðið náði fimmta sætinu sem er enn besti árangur Íslands á heimsmeistaramótinu. Valdimar fór mikinn í hægra horninu og varð þriðji markahæsti leikmaður mótsins með 52 mörk, þar af 18 þeirra úr vítum. Íslenska liðið tapaði aðeins einum af níu leikjum sínum en það var eins marks tap á móti Ungverjum í átta liða úrslitum keppninnar.

Timarit.is/Dagblaðið Vísir

EM í Svíþjóð 2002

Ólafur Stefánsson, hægri skytta

Ólafur varð markakóngur Evrópumótsins í Svíþjóð 2002 þar sem íslenska landsliðið komst í undanúrslit í fyrsta sinn á Evrópumóti og endaði að lokum í fjórða sætinu. Ólafur skoraði 58 mörk og nýtti 54 prósent skota sinna í leikjunum átta en framlag hans lá ekki síst í fjölmörgum stoðsendingum á liðsfélagana. Ólafur varð skráður með 37 stoðsendingar hjá mótshöldurum og kom því samtals að 95 mörkum eða 11,9 að meðaltali í leik sem var það mesta á öllu Evrópumótinu.

EPA/REGINA KUEHNE

EM í Sviss 2006

Ólafur Stefánsson, hægri skytta

Ólafur varð fyrstur Íslendinga til að komast tvisvar sinnum í úrvalslið á stórmóti þegar hann var valinn í úrvalsliðið á Evrópumótinu 2006. Ólafur spilaði frábærlega á mótinu en hann missti af tveimur leikjum, leik tvö og þrjú, eftir að hafa fengið að kenna á því hjá Serbum í fyrsta leik. Ólafur skoraði 33 mörk í fjórum leikjum eða 8,3 að meðaltali í leik og íslenska liðið náði sjöunda sæti. Ólafur var einnig skráður með sautján stoðsendingar og kom því með beinum hætti að 12,5 mörkum í leik.

Getty/Vladimir Ry

Ólympíuleikar í Peking 2008

ÓL 2008 Ólafur Stefánsson, hægri skytta

ÓL 2008 Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi

ÓL 2008 Guðjón Valur Sigurðsson, vinstra horn

Ísland átti þrjá fulltrúa í úrvalsliði Ólympíuleikanna í Peking 2008 þar sem íslenska landsliðið náði sínum besta árangri frá upphafi á stórmóti. Í fyrsta og eina skiptið komust strákarnir okkar alla leið í úrslitaleikinn þar sem liðið varð að sætta sig við tap á móti Frökkum. Söguleg frammistaða skilaði silfurverðlaunum sem var í fyrsta sinn sem svo fámenn þjóð vinnur verðlaun í liðakeppni á Ólympíuleikum. Þarna voru þeir Ólafur Stefánsson, Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sigurðsson heldur betur í essinu sínu og sáu til þess að Ísland átti þrjá af sjö leikmönnum úrvalsliðsins. Ólafur var fyrirliði og leiðtogi liðsins en hann fékk menn til að trúa á það að ná verðlaunum. Hann var þarna í úrvalsliðinu í þriðja sinn á ferlinum eftir að hafa skilað 29 mörkum og 38 stoðsendingum. Snorri Steinn Guðjónsson spilaði stórkostlega við hlið hans í leikstjórnendastöðunni og varð næstmarkahæsti leikmaður mótsins með 48 mörk, þar af 21 úr vítum. Guðjón Valur missti af fyrsta leiknum á mótinu vegna meiðsla en varð engu að síður þriðji markahæsti maður mótsins með 43 mörk í sjö leikjum og ekkert þeirra kom af vítalínunni.

EPA/GEORG HOCHMUTH

EM 2010

Ólafur Stefánsson, hægri skytta

Ólafur hélt áfram að skrifa söguna með því að verða fyrsti Íslendingurinn til að vera valinn fjórum sinnum í úrvalslið stórmóts. Ólafur leiddi íslenska liðið til bronsverðlauna á Evrópumótinu í Austurríki og íslenska landsliðið hafði því unnið verðlaun á tveimur stórmótum í röð því liðið komst ekki í gegnum umspilið fyrir heimsmeistaramótið árið áður. Ólafur var reyndar aðeins fimmti markahæsti leikmaður íslenska liðsins í mótinu og annar í stoðsendingum á eftir Arnóri Atlasyni en leiðtogshlutverkið hans var óumdeilt. Hann skoraði 31 mark og gaf 14 stoðsendingar að mati opinberrar tölfræði mótsins og kom því að 5,6 mörkum að meðaltali í leik.

EPA/JONAS EKSTROMER

HM 2011

Alexander Petersson, hægri skytta

Ári eftir að Alexander Petersson var kosinn íþróttamaður ársins steig hann inn í enn stærra hlutverk í íslenska liðinu í forföllum Ólafs Stefánssonar á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð 2011 þar sem íslenska landsliðið náði sjötta sætinu. Alexander átti frábært mót, skoraði 53 mörk í níu leikjum með sextíu prósenta skotnýtingu úr hægri skyttunni. Hann varð sjötti markahæsti maður mótsins en tók samt ekki eitt einasta víti. Alexander varð einnig áttundi í stoðsendingum með 28 slíkar og kom því samtals að 81 marki eða xx að meðaltali. Aðeins tveir leikmenn á Evrópumótinu áttu þátt í fleiri mörkum, Daninn Mikkel Hansen og Frakkinn Nikola Karabatic, en þeir spiluðu báðir einum leik meira en Alexander.

Getty/ Srdjan Stevanovic

EM 2012

Guðjón Valur Sigurðsson, vinstra horn

Guðjón Valur varð valinn í úrvalslið stórmóts í annað skiptið þegar hann spilaði best af öllum vinstri hornamönnunum á Evrópumótinu í Serbíu 2012. Guðjón spilaði það vel að hann komst í liðið þótt íslenska liðið hafi aðeins endað í tíunda sæti á mótinu og bara unnið tvo af sex leikjum sínum. Guðjón varð sjötti markahæsti maður mótsins með 41 mark í sex leikjum og 65 prósent skotnýtingu. Hann skoraði 6,8 mörk að meðaltali í leik. Guðjón Valur var þarna kominn með fyrirliðabandið í forföllum Ólafs Stefánssonar.

Getty/ Jeff Gross

ÓL 2012

Aron Pálmarsson, vinstri skytta

Aron blómstraði á Ólympíuleikunum í London og komst í úrvalsliðið sem vinstri skytta. Aron var á þessum tíma kominn í hóp bestu handboltamanna heims og bættist hér við silfurliðið frá Ólympíuleikunum og bronsliðið frá EM 2010. Íslenska liðið vann fimm fyrstu leiki sína en tapaði síðan á sorglegan hátt í átta liða úrslitunum á móti Ungverjum í tvíframlengdum leik. 

Aron varð fimmti markahæsti leikmaður mótsins þrátt fyrir að spila aðeins sex leiki en hann skoraði 37 mörk og nýtti 59 prósent skota sinna. Aron var reyndar næstmarkahæsti leikmaður Íslands því Guðjón Valur skoraði sjö mörkum meira. Aron gaf aftur á móti flestar stoðsendingar í íslenska liðinu (24) og varð í sjöunda sæti á leikunum þrátt fyrir að spila bara sex leiki. Alls kom hann að 61 marki í sex leikjum eða meira en tíu mörkum í leik. Það voru aðeins tveir leikmenn ofar en hann (Domagoj Duvnjak og Kim Andersson) og þeir léku báðir tveimur leikjum meira.

EPA/RAUL CARO

EM 2014

Guðjón Valur Sigurðsson, vinstra horn

Guðjón Valur varð valinn í úrvalsliðið á öðru Evrópumótinu í röð þegar hann hjálpaði íslenska landsliðinu að ná fimmta sætinu á EM í Danmörku 2014. Þetta var líka í þriðja sinn sem hann komst í úrvalslið og Ólafur Stefánsson er eini Íslendingurinn sem hefur náð því oftar. Guðjón Valur varð næstmarkahæsti leikmaður mótsins með 44 mörk í sjö leikjum en hann nýtti 73 prósent skota sinna. Guðjón skoraði fimmtán af mörkunum úr vítum og tólf þeirra úr hraðaupphlaupum. Guðjón spilaði einnig í meira en sex klukkutíma á mótinu og fór varla af velli.

Vísir/Vilhelm

EM 2022

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður

Viktor Gísli varð fyrsti íslenski markvörðurinn til komast í úrvalslið stórmóts þegar hann var valinn í úrvalsliðið á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu 2022. Hinn 22 ára gamli Viktor stimplaði sig inn á stóra sviðið sem einn af bestu markvörðum heims og átti mikinn þátt í því að Ísland náði sjötta sætinu á mótinu. Viktor varði 42 skot í sjö leikjum samkvæmt opinberri tölfræði mótsins og 32 prósent skota sem á hann komu. Tuttugu af þessum skotum komu úr dauðafærum þar sem hann lagði oft grunninn að góðum sigrum með því að halda íslenska liðinu inni í leikjunum. Ómar Ingi Magnússon varð markakóngur keppninnar, með ellefu mörkum meira en næsti maður, en Daninn Mathias Gidsel hélt honum út úr úrvalsliðinu.

Vísir/Vilhelm

EM 2026

 Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×