KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 11:32 Almar Orri Atlason er hér búinn að koma auga á leið upp á körfunni og keyrir fram hjá sínum manni. Getty/Frank Jansky Almar Orri Atlason og félagar í Miami-háskólanum hafa vakið mikla athygli í bandaríska háskólakörfuboltanum í vetur og hafa enn ekki tapað leik á tímabilinu.
Tímabilið hjá Almari Orra byrjaði með íslenska A-landsliðinu á Eurobasket en hann hefur síðan upplifað annað ævintýri á fyrsta vetri sínum með Miami Red Hawks-liðinu. Liðið er núna í 24. sæti yfir bestu háskólaliðin á nýjasta listanum hjá NCAA og er liðið komið vel á veg með því að tryggja sér þátttökurétt í körfuboltafárinu í mars en það kallast vanalega úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans. Almar Orri er uppalinn í KR en hefur einnig spilað risastórt hlutverk hjá unglingalandsliðum Íslands síðustu ár. Í haust var hann síðan valinn í íslenska EM-hópinn og fékk að spreyta sig á stóra sviðinu. „Almar er alveg 2,03 metrar og 106 kíló, en hann er svolítið eins og leikstjórnandi,“ sagði Travis Steele, aðalþjálfari Miami, um Almar á heimasíðu skólans. View this post on Instagram A post shared by Miami Men’s Basketball (@miamioh_bball) Þjálfarinn hrósar Íslendingum fyrir körfuboltaklókindi. „Hann hefur mjög góðan körfuboltaskilning, sér hlutina vel á báðum endum vallarins, er augljóslega gríðarlega stór, skýtur vel, getur sent boltann og getur höndlað hann svolítið,“ sagði Steele. „Hann er erfiður viðureignar og býr til vandamál fyrir andstæðingana. Það er erfitt að dekka hann. Hann er leikmaður sem heldur fyrir þér vöku á nóttunni sem þjálfari andstæðingaliðsins,“ sagði Steele sem hefur mikla trú á Íslendingnum. Almar ákvað að skipta úr Bradley-skólanum og fara yfir í Miami-skólann sem er þrátt fyrir nafnið ekki á Flórída heldur í Ohío-fylki. „Hæfileikar Atlasonar ættu að passa fullkomlega inn í Oxford fyrir það sem Red Hawks eru að reyna að gera leikkerfislega (sérstaklega í sókninni), þar sem fjölhæfni hans gerir honum kleift að spila í stöðu kraftframherja (4) við hliðina á stóra manninum Antwone Woolfolk, sem snýr aftur, eða að færast yfir í stöðu miðherja (5) við hliðina á vængmönnum eins og Eian Elmer og Brant Byers,“ segir um Almar á heimasíðu skólans. View this post on Instagram A post shared by Miami Men’s Basketball (@miamioh_bball) Almar sjálfur sá það líka hvernig hæfileikar hans gátu blandast leikkerfi Steele og það er stór ástæða fyrir því að hann ákvað að skipta yfir í Miami. „Eitt af því fyrsta sem hann spurði mig var að hverju ég væri að leita,“ sagði Atlason. „Ég nefndi nokkur atriði og þá sagði hann bara: ‚Þannig spilum við og það er það sem við gerum.‘ Þetta passaði einhvern veginn saman. Hann vill spila hratt, finna góð þriggja stiga skot og spila með flæðandi leikstíl: Leikmenn taka ákvarðanir og hreyfa boltann. Ég held að það henti mér mjög vel og það er það sem við erum að gera hér,“ sagði Almar. Niðurstaðan er fullkomið tímabil hingað til. Miami er búið að vinna 22 fyrstu leiki tímabilsins og það sem meira er að þeim er raðað sem eitt af 25 bestu körfuboltaliðum Bandaríkjanna. Liðið komst inn á listann í 25. sæti á listanum 20. janúar og er komið upp í 24. sæti á nýjasta listanum. Þetta er í fyrsta sinn á þessari öld, eða síðan árið 1999, sem lið skólans kemst í hóp bestu körfuboltaliða Bandaríkjanna. Almar er að skila 10,9 stigum að meðaltali á 18,6 mínútum í leik. Hann hefur nýtt 39 prósent þriggja stiga skota sinna, 84 prósent vítanna og er að setja niður næstum því tvo þrista að meðaltali. Hann skoraði 26 stig í einum sigurleiknum og var þá stigahæsti maður liðsins sem hann hefur þegar náð fjórum sinnum á leiktíðinni. Næsti leikur liðsins er á útivelli á móti Buffalo í kvöld. View this post on Instagram A post shared by NCAA March Madness (@marchmadnessmbb)
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Handbolti Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Fótbolti Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara Handbolti Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Enski boltinn Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Fótbolti KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Körfubolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Fleiri fréttir „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 125-87 | Meistararnir völtuðu yfir Stólana „Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“ Uppgjörið: Njarðvík - Álftanes 101-96| Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir heimamenn Uppgjör og viðtöl: ÍA - KR 98-120 | Fjórði sigur KR-inga í röð Uppgjör og viðtöl: Grindavík - Valur 78-67 | Áfram fullkomnir á heimavelli Uppgjör og viðtal: Ármann - ÍR 74-109 | Fóru létt með kanalausa Ármenninga Valur og KR styrkja sig rétt fyrir lok gluggans Uppgjörið: Valur - Haukar 90-97 | Fimm í röð hjá Haukum Umfjöllun og viðtöl: Grindavík 74-79 KR | Risastór sigur KR Doncic skoraði 46 stig en þjálfarinn segir hann reyna á þolinmæðina Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 98-81 | Keflvíkingar skelltu Stólunum „Miklu skemmtilegra að spila körfubolta þegar fólkið er í húsinu“ Martin fagnaði eftir framlengingu Rose hengdur upp í rjáfur í Chicago Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti