Þessir þrír drepa alla góða fundi Rakel Sveinsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 07:02 Það er svo margt að breytast í atvinnulífinu að nú er víst ekki seinna vænna en að fara að læra um hvernig fundarfyrirkomulag þarf að breytast. En sumt virðist þó ekki breytast. Til dæmis þessir þrír fundarmenn sem alltaf tekst að drepa alla góða fundi. Vísir/Getty Þær eru ófáar bækurnar eða ritin sem hafa verið gefin út um fundi og fundarmenningu. Í raun hefur svo mikið verið rætt og ritað um fundi að ætla mætti að nokkurn veginn allt hafi verið sagt nú þegar í þeim efnum.
En því er nú öðru nær. Því tímarnir breytast og mennirnir með. Eða kannski....ekki? Nýverið kom út leiðbeinandi bók um fundi eftir skipulagsfræðinginn Rebeccu Hinds, Your Best Meeting Ever: 7 Principles for Designing Meetings That Get Things Done. Í bókinni segir Hinds að ýmislegt í því fyrirkomulagi funda sem við þekkjum sé úr sér gengið. Úrelt. Endurspeglar tímana sem voru. Ekki þá sem verða. Fjarvinna, sjálfvirknivæðing, gervigreindin, nýjar kynslóðir, ný viðhorf og svo framvegis. Listi breytinga er endalaus. Þó eru það þrjár týpur fundarmanna sem Hinds bendir á að nái alltaf að drepa alla góða fundi. Með hegðun sem hún segir óviðunandi (e. toxic). Þessir þrír fundarmenn eru: Einvaldið. Þessi fundarmaður er oftast háttsettur; yfirmaður, stjórnandi, sérfræðingur. Sem talar snemma á fundum, talar mikið og talar þannig að hans sjónarmið telst sjálfkrafa „rétt.“ Sem er alls ekki gott, því ekki aðeins dregur það úr líkunum á að önnur sjónarmið heyrist, heldur verður fundurinn frekar eins og einhvers konar staðfestingar-athöfn frekar en samvinna eða samtal. Vanhæfi fundarstjórinn. Þessi fundarmaður verður að teljast sígilt vandamál. En vanhæfur fundarstjóri er sá sem leiðir fund sem endar með að hafa ekki skýran tilgang, dagskrá eða ákvörðunarferli. Þið þekkið þessa fundi; fólk endar með að fara út af þeim pirrað, orkulaust og hættir almennt að nenna fundum, lærir að missa trú á þeim. Ofstopinn. Við notum í raun fleiri slanguryrði yfir þessar týpur en íslensk orð. Til dæmis tölum við um að einhver sé bersevísir (þ.besserwissen) eða að einhver sé algjör bullí (e. bullie). Þennan fundarmann þekkja reyndar allir. En hann er sá sem truflar stöðugt, talar niður til annarra, einokar umræðuna eða sýnir yfirgang. Ríkjandi í okkur flestum er hins vegar það að forðast neikvæð viðbrögð. Sem þýðir að einn ofstopi á fundinum leiðir oft til þess að aðrir þegja og bestu hugmyndirnar komast ekki fram. Þannig að hvað svo sem nýjum skipulagsfræðum líður eða aðrar stórtækar breytingar í atvinnulífinu, erum við þó ekki komin lengra en það að gamalkunnug hegðun sem við höfum þekkt í áratugi, er enn að orsaka það að góðir fundir geta auðveldlega farið fyrir bí. Uppfært: Orðið besserwissen er þýskt að uppruna en ekki danskt eins og sagt var í upphaflegri útgáfu.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Góð ráð gegn mánudagsvinnukvíðanum Þótt við séum ánægð í vinnunni okkar kannast margir við að finna fyrir kvíða þegar líður á helgarfríið, hnútur sem stækkar á sunnudagskvöldum og er ekki enn farinn þegar að við mætum til vinnu á mánudagsmorgni. 31. janúar 2022 07:01 Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum Að vinna á draumavinnustaðnum er geggjuð upplifun. Að hlakka til hvers dags til að fara að vinna og upplifa daginn sem ánægjuna eina: Svo gaman að vinna, svo frábær vinnustaður. 7. mars 2025 07:01 Eitraður starfsmaður og góð ráð Það er stundum talað um eitraða vinnustaðamenningu. Eða eitraða stjórnarhætti. En hvað með stöðuna þegar stjórnandi er með eitraðan starfsmann? 21. október 2024 07:03 Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 12. janúar 2024 07:00 Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01 Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Góð ráð gegn mánudagsvinnukvíðanum Þótt við séum ánægð í vinnunni okkar kannast margir við að finna fyrir kvíða þegar líður á helgarfríið, hnútur sem stækkar á sunnudagskvöldum og er ekki enn farinn þegar að við mætum til vinnu á mánudagsmorgni. 31. janúar 2022 07:01
Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum Að vinna á draumavinnustaðnum er geggjuð upplifun. Að hlakka til hvers dags til að fara að vinna og upplifa daginn sem ánægjuna eina: Svo gaman að vinna, svo frábær vinnustaður. 7. mars 2025 07:01
Eitraður starfsmaður og góð ráð Það er stundum talað um eitraða vinnustaðamenningu. Eða eitraða stjórnarhætti. En hvað með stöðuna þegar stjórnandi er með eitraðan starfsmann? 21. október 2024 07:03
Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 12. janúar 2024 07:00
Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01