„Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. febrúar 2026 10:03 Jón Halldórsson hefur sett sig samband við þýska handknattleikssambandið og vonast til að geta útvegað miða á HM 2027. vísir Jón Halldórsson formaður HSÍ segir það koma í ljós á næstu tveimur vikum hvort stuðningsmenn íslenska landsliðsins geti gengið að fleiri en hundrað miðum vísum á úrslitahelgi næsta stórmóts, HM í Þýskalandi. Þá kemur líka í ljós hvar riðlakeppnin verður spiluð.
Mjög fáir íslenskir aðdáendur gátu stutt strákana okkar á úrslitahelgi EM. Heimaþjóð Dana var búin að kaupa flestalla miða löngu fyrir fram og það má búast við svipuðum áhuga heimamanna þegar HM fer fram í Þýskalandi á næsta ári, en nú er HSÍ reynslunni ríkari. „Ég talaði við forsvarsmenn þýska sambandsins þegar við vorum úti og það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur, til að sjá til þess að við lendum ekki í þessari aðstöðu aftur“ sagði Jón í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi en innslagið má sjá hér fyrir neðan. Þá sagði Jón einnig að miðarnir sem hvert lið fær úthlutað í úrslitakeppninni væru allt of fáir, fleiri væru sammála því og þrýstingur yrði settur á evrópska og alþjóða handknattleikssambandið að breyta því. „Þetta eru allt of fáir miðar og ætti að vera miklu meira magn. Ég hefði viljað sjá að lágmarki þrjú þúsund miða á hvert lið sem kemst áfram, en það er búin að vera mikil gagnrýni á þetta. Umræðan er farin af stað og við sem stöndum að þessu munum halda því samtali áfram og vonast til að geta haft sterk áhrif á það.“ En fyrirkomulaginu verður ekki breytt fyrir næsta HM því miðasala er löngu hafin og þó HSÍ sé reynslunni ríkari eftir EM er sambandið ekki ríkt og finna þarf leiðir til að fjármagna miðana sem sambandið ætlar að taka frá. Getur HSÍ gert það? „Ef þú ætlar að tryggja þér einhverja 2-3000 miða þá eru þetta tugir milljóna. Það er bara eitthvað sem við erum að skoða, út frá fjárhagi sambandsins og hvort við getum fengið eitthvað lið með okkur ef að til þess kemur.“ Bláir dropar í rauðu hafi á undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur. vísir / Vilhelm Átta liða úrslit, undanúrslit og úrslitaleikir verða spilaðir í Köln og þar rjúka miðar út en Jón segir tíðinda að vænta á næstu tveimur vikum um hvort íslenskir stuðningsmenn eigi eitthvað frátekið. Íslendinganýlendan í Magdeburg líklegur áfangastaður Það kemur svo í ljós bráðlega hvar Ísland mun spila sína leiki í riðlakeppninni en Magdeburg þykir líklegasti áfangastaðurinn. „Það eru allir að tala um það, að við verðum í Magdeburg. Sem er hálfgerð Íslendinganýlenda, þar spila þrír af okkar landsliðsmönnum. Margt bendir til þess en það er ekkert staðfest. Ég ræddi við forsvarsmenn þýska sambandsins, núna um helgina í Danmörku, og þeir lofuðu mér svari á næstu tveimur vikum.“
Landslið karla í handbolta HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira