Frítt í Strætó fyrir börn og ungmenni - ólíkt hafast menn að Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 4. febrúar 2026 19:00 Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt verði í Strætó fyrir ungmenni í bænum. Við afgreiðslu allra fjárhagsáætlana kjörtímabilsins hafa fulltrúar jafnaðarfólks í bæjarstjórn lagt fram þessa tillögu eða fjórum sinnum og jafnoft hefur meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafnað tillögunni án nokkurrar umræðu eða rökstuðnings. Ungmennaráð Hafnarfjarðar hefur sömuleiðis oft lagt fram tillögur sama efnis og þeim hefur verið vísað til vinnslu innan bæjarkerfisins án þess að nokkuð hafi komið út úr þeirri vinnu. Það undirstrikar svo ekki verður um villst áhugaleysi fulltrúa Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks á málinu. Reykjavík fer af stað Þær fréttir bárust í gær að borgarstjórn hefði samþykkt tillögu meirihlutans í Reykjavík, undir forystu Samfylkingarinnar, um að frítt verði í Strætó fyrir grunnskólabörn í Reykjavík. Meirihlutinn í borginni gengur þarna á undan með góðu fordæmi, sem er ánægjuefni og einfaldlega sýnir að það skiptir máli hverjir stjórna. Þessi ákvörðun borgarstjórnar dregur fram að þar er meirihlutinn að leita leiða til þess að bæta lífsgæði, jafna tækifæri fyrir börn í borginni, styðja við barnafjölskyldur og draga sömuleiðis úr skutli og umferð. Á sama tíma sýna þeir sem fara með völdin í Hafnarfirði, Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn, málinu nákvæmlega engan áhuga og sitja auðum höndum í því eins og svo mörgum öðrum. Já, ólíkt hafast menn að. Mikilvægt að jafna tækifæri barna og ungmenna Við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar þessa meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í byrjun desember felldi meirihlutinn í fjórða sinn þessa tillögu Samfylkingarinnar. Síðan þá hefur Samfylkingin rekið á eftir málinu með því að óska eftir opinberum upplýsingum um notkun Strætó í Hafnarfirði og upplýsingum um kostnað ef frítt verður í Strætó fyrir þennan aldurshóp. Og nú liggur fyrir að sá kostnaður er einungis 57 milljónir á ársgrundvelli. Í því ljósi verður andstaða og áhugaleysi meirihlutans í Hafnarfirði sífellt einkennilegri. Jafnaðarfólk mun áfram berjast fyrir þessu máli í þágu hafnfirskra ungmenna og við munum endurflytja tillöguna vegna þess að samþykkt hennar mun auka notkun almenningssamgangna og létta á umferðinni í bænum sem og minnka kostnað hafnfirskra fjölskyldna. Þar að auki dregur samþykkt hennar úr aðstöðumun barna og ungmenna og fjölgar tækifærum þeirra til þess að ferðast um bæinn til að stunda nám og leik. Þörf á breytingum í Hafnarfirði - Samfylkingin tilbúin að ganga í verkin Ef fulltrúar meirihlutans eru enn við sama heygarðshornið og fella tillögu Samfylkingarinnar í fimmta sinn, þá munu fulltrúar jafnaðarfólks einfaldlega taka málið upp strax að loknum bæjarstjórnarkosningum í vor og koma því í örugga höfn síðar á þessu ári. Það er þörf á nýjum vinnubrögðum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Kraftar núverandi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks eru á þrotum og hann kominn á endastöð. Bæjarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí nk. og þá gefst kjósendum kærkomið tækifæri til breytinga. Samfylkingin er með skýra sýn og stefnu til framtíðar og er tilbúin að ganga í verkin. Þetta mál, frítt í strætó fyrir ungmenni bæjarins, er dæmi um slíkt. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Rúnar Þorvaldsson Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar