Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. febrúar 2026 11:02 Aðalleikararnir í Mamma mia ræddu við fréttastofu Sýnar í beinni útsendingu í gærkvöldi og frumsýna á föstudaginn. Nemendur Víðistaðaskóla í Hafnarfirði frumsýna uppsetningu á söngleiknum Mamma Mía á föstudaginn með fimmtíu manna leikhópi. Foreldrar, kennarar og nemendur hafa setið sveittir við að smíða leikmynd og búninga.
Fréttamaðurinn Tómas Arnar kíkti upp í Víðistaðaskóla þar sem ræddi við hluta af leikhópnum, fylgdist með fjölda foreldra vinna að leikmynd og tugi krakka æfa sig. Er þetta búið að vera langt ferli? „Þetta er búið að vera rosalangt ferli, við erum búin að vera að æfa síðan í nóvember á fullu,“ sögðu krakkarnir áður en hann spjallaði við Völu Hrönn Pétursdóttur, foreldri og deildarstjóra unglingastigs, og leikstjórann Úlfhildi Harne Örnólfsdóttur. Krakkarnir í Víðistaðaskóla hafa unnið hörðum höndum að uppsetningunni. Foreldrar hafa verið hérna á milljón að undirbúa sviðsmyndina? „Foreldrar eru búnir að vera hérna síðan í janúar, allar helgar og fram á kvöld. Þetta væri ekki hægt ef það væri ekki fyrir foreldrahópinn, þau eru bara í öllu: smíða leikmynd, sauma búninga, markaðssetningu,“ sagði Vala Hrönn. Þetta er góð leið til að hrista saman hópinn, hér eru allir brosandi. „Þetta er náttúrulega rússíbani en þetta er fyrst og fremst búið að vera gaman. Allir svo jákvæðir og til í slaginn, leikhópurinn, allir sem koma að þessu, skólinn og foreldrarnir, þau eru búin að vera dásamleg. Það er líka greinilega að skólinn býr að svo ríku nærsamfélagi,“ sagði Úlfhildur. Að lokum mátti sjá krakkana dansa og syngja í fjölmennu dansatriði við sígilda slagarann „Voulez-Voulez“ með ABBA sem sjá má í klippunni að neðan.
Leikhús Hafnarfjörður Börn og uppeldi Grunnskólar Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun South Park verður South America Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Lífið samstarf Kappsmál sett á ís Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Fleiri fréttir Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira