Nú þarf ákvörðun, ekki afsakanir Monika Margrét Stefánsdóttir og skrifa 11. febrúar 2026 11:03 Framsóknarflokkurinn er ekki að glíma við tímabundnar áskoranir, hann hefur verið að tapa áttum. Flokkur sem veit ekki lengur hver hann er getur ekki ætlast til þess að kjósendur treysti honum fyrir framtíð landsins. Við höfum reynt varfærni, við höfum reynt málamiðlanir, við höfum reynt að þóknast öllum en það virkaði ekki. Nú er ekki tími fyrir fleiri greiningar, vinnuhópa eða málamiðlanir, nú er tími fyrir ákvarðanir. Framsókn þarf forystu sem þorir að horfast í augu við raunveruleikann, viðurkenna mistök og taka ábyrgð. Formaður Framsóknar má ekki vera sá sem heldur alltaf friðinn, hann verður að vera sá sem endurheimtir sjálfsmynd flokksins, sá sem segir sannleikann jafnvel þegar hann er óþægilegur, sá sem stendur fastur jafnvel þegar þrýstingurinn er mikill, sá sem leiðir en ekki sá sem bíður eftir samþykki. Flokkur sem vill vinna traust kjósenda verður fyrst að bera virðingu fyrir sjálfum sér, finna aftur ræturnar og kjósa sér sterkann leiðtoga sem vinnur hörðum höndum í að koma flokknum aftur á réttan stað. Þessi leiðtogi er Ingibjörg Ísaksen! Ég styð Ingibjörgu af persónulegri reynslu. Ég hef séð hvernig hún starfar þegar engar myndavélar eru á lofti og enginn ávinningur í sjónmáli fyrir hana persónulega. Hún er sanngjörn í samvinnu, hlustar af alvöru og kemur fram við fólk af virðingu, líka þegar það er ósammála henni. Hún hefur þann sterka eiginleika að draga fram það besta í fólki, fá það til að hafa trú á sjálfu sér og hafa trú á verkefnum án þess að slaka á kröfum eða stefnum. Ég hef séð hvernig sterk forysta skapar traust, styrkir liðsheild og fær fólk til að standa aðeins beinna. Fyrir mér skipta þessir eiginleikar miklu máli, ekki bara hver segir hvað heldur hvernig leiðtogi kemur fram, tekur ákvarðanir og ber ábyrgð. Þess vegan styð ég Ingibjörgu Ísaksen, ekki af vana, ekki af tryggð heldur vegna þess að ég trúi því af eigin reynslu að hún sé sú forysta sem Framsókn þarf núna. Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi og formaður Framsóknarfélags Dalvíkurbyggðar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Framsóknarflokkurinn er ekki að glíma við tímabundnar áskoranir, hann hefur verið að tapa áttum. Flokkur sem veit ekki lengur hver hann er getur ekki ætlast til þess að kjósendur treysti honum fyrir framtíð landsins. Við höfum reynt varfærni, við höfum reynt málamiðlanir, við höfum reynt að þóknast öllum en það virkaði ekki. Nú er ekki tími fyrir fleiri greiningar, vinnuhópa eða málamiðlanir, nú er tími fyrir ákvarðanir. Framsókn þarf forystu sem þorir að horfast í augu við raunveruleikann, viðurkenna mistök og taka ábyrgð. Formaður Framsóknar má ekki vera sá sem heldur alltaf friðinn, hann verður að vera sá sem endurheimtir sjálfsmynd flokksins, sá sem segir sannleikann jafnvel þegar hann er óþægilegur, sá sem stendur fastur jafnvel þegar þrýstingurinn er mikill, sá sem leiðir en ekki sá sem bíður eftir samþykki. Flokkur sem vill vinna traust kjósenda verður fyrst að bera virðingu fyrir sjálfum sér, finna aftur ræturnar og kjósa sér sterkann leiðtoga sem vinnur hörðum höndum í að koma flokknum aftur á réttan stað. Þessi leiðtogi er Ingibjörg Ísaksen! Ég styð Ingibjörgu af persónulegri reynslu. Ég hef séð hvernig hún starfar þegar engar myndavélar eru á lofti og enginn ávinningur í sjónmáli fyrir hana persónulega. Hún er sanngjörn í samvinnu, hlustar af alvöru og kemur fram við fólk af virðingu, líka þegar það er ósammála henni. Hún hefur þann sterka eiginleika að draga fram það besta í fólki, fá það til að hafa trú á sjálfu sér og hafa trú á verkefnum án þess að slaka á kröfum eða stefnum. Ég hef séð hvernig sterk forysta skapar traust, styrkir liðsheild og fær fólk til að standa aðeins beinna. Fyrir mér skipta þessir eiginleikar miklu máli, ekki bara hver segir hvað heldur hvernig leiðtogi kemur fram, tekur ákvarðanir og ber ábyrgð. Þess vegan styð ég Ingibjörgu Ísaksen, ekki af vana, ekki af tryggð heldur vegna þess að ég trúi því af eigin reynslu að hún sé sú forysta sem Framsókn þarf núna. Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi og formaður Framsóknarfélags Dalvíkurbyggðar
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar