Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Jakob Bjarnar skrifar 12. febrúar 2026 10:36 Tryggvi, sem þekktur er fyrir að gæta orða sinna, gaf þó Jóhanni Páli engan afslátt þegar hann gaf honum sem umhverfisráðherra einkunn. vísir/egill/lýður Enginn friður er í sjónmáli um nýtt lagareldisfrumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Reyndar virðist hitna í kolum fremur en hitt. Ummæli Tryggva Felixsonar, fyrrverandi formanns Landverndar, um Jóhann Pál Jóhannsson umhverfisráðherra hafa vakið verulega athygli.
Nýr þáttur um umhverfismál hefur verið kynntur á Samstöðinni, svokallað „Græna borðið“ og í fyrsta þætti voru þar Páll Ásgeir Ásgeirsson, Jón Kaldal, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Tryggvi en hann er þekktur fyrir að vera grandvar og gæta orða sinna. Því ráku menn upp stór augu þegar hann lét gamminn geisa um ráðherrana. Hellir sér yfir Jóhann Pál „Ég hefði gaman að því að fá yfirlit yfir hversu marga fundi, og í sumum löndum gæti ég fengið það, meintur umhverfisráðherra, starfandi orkumálaráðherra hefur haft með öðrum samtökum en náttúruverndarsamtökum?,“ spyr Tryggvi og hann er hvergi nærri hættur. „Ég veit að hann hefur átt fundi með fulltrúm Landverndar og svo framvegis, og það er ljúft og gott að tala við umhverfisráðherra. Hann er ljúflingur í samskiptum. Og með vit í kollinum. En hann hefur gengið í björg, hann hefur gengið í Epstein-björg og er orðinn hluti af þessu apparati sem eru hagsmunasamtök. Ég veit að það er gróft að segja þetta en þannig blasir þetta við mér. Maðurinn er hættur að sinna þjóðinni og farinn að sinna einhverjum sérhagsmunum,“ segir Tryggvi. Þar er Tryggvi að vísa til máls Jeffreys Epstein, bandarísks auðjöfurs og barnaníðings, sem svipti sig lífi í fangelsi árið 2019. Það gerði hann eftir að hann var handtekinn vegna ásakana um kynferðisbrot og mansal. Umdeilt frumvarp Lagareldisfrumvarpið var nýlega tekið úr samráðsgátt eftir metfjölda umsagna, flestum neikvæðum. Ljóst er að þeir sem eru ósáttir við drögin telja málinu hvergi nærri lokið; þeir telja drögin óásættanleg. Þannig voru ummæli þriggja ráðherra áður en þau urðu ráðherrar og voru í stjórnarandstöðu, rifjuð upp en þar talaði Jóhann Páll í apríl 2024 um að afhenda ætti laxeldisfyrirtækjum í eigu norskra auðmanna varanlegan aðgang að fjörðum okkar með rekstrarleyfum sem eiga að gilda út í eilífiðina og sem verður hægt að veðsetja og framselja og braska með. Jóhann Páll fagnaði því, í samtali við Vísi, að þessi ummæli hans væru rifjuð upp því hann hyggðist standa á vaktina. Og hann treysti Hönnu Katrínu og ráðuneytinu til að pakka málinu í ásættanlegar umbúðir. Víst er þó, að eins og drögin liggja fyrir, að frumvarpið mun reynast ríkisstjórninni erfitt, einkum Viðreisn en Bubbi Morthens tónlistarmaður er meðal þeirra sem hefur beinlínis varað fólk við því að kjósa Viðreisn eftir að drögin voru kynnt. Þá hafa menn fullyrt að frumvarpsdrögin hafi verið samin beinlínis af sjókvíaeldisfyrirtækjunum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjókvíaeldi Umhverfismál Fiskeldi Tengdar fréttir Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Lagareldisdrög Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra fá falleinkunn, þau hafa ekki stuðlað að sátt um atvinnugreinina heldur virðist sem svo að með drögunum hafi tekist að sameina fjölda fólks gegn þeim. 26. janúar 2026 11:26 Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Fleiri fréttir Sex handteknir í vændisrassíu lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ Sjá meira
Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Lagareldisdrög Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra fá falleinkunn, þau hafa ekki stuðlað að sátt um atvinnugreinina heldur virðist sem svo að með drögunum hafi tekist að sameina fjölda fólks gegn þeim. 26. janúar 2026 11:26