Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Árni Sæberg skrifar 12. febrúar 2026 15:08 Sigurður Ragnar er sá sem heldur möppunni fyrir andlitinu og Agurim er sá í stuttermabolnum. Aðrir eru lögmenn og laganna verðir. Þessi mynd er tekin í Héraðsdómi Reykjavíkur á sínum tíma. Vísir/Anton Brink Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í stærsta kristal-metamfetamínsmáli Íslandssögunnar. Sigurður Ragnar Kristinsson hlaut þyngstan dóm sex sakborninga, átta ára fangelsi.
Landsréttur kvað upp dóm í málinu klukkan 15 en dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt þá Sigurð Ragnar Kristinsson í átta ára fangelsi, Agurim Xixa í fimm ára og sex mánaða, Baldur Þór Sigurðarson í fjögurra ára, Sigfús Bergmann Svavarsson þriggja ára og sex mánaða fangelsi. Ein kona var dæmd til tíu mánaða fangelsisvistar. Einn karlmaður var sýknaður. Tæp sex kíló af metamfetamín-kristöllum Sexmenningarnir, sem allir neituðu sök, voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sem ákærðu sammæltust um að fremja, með því að hafa staðið saman að innflutningi á 5,733 kílóum af metamfetamín-kristöllum. Efnin, sem voru með 81 prósent styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvarar 100 prósent metamfetamínklóríði, voru falin í Jagúar-bíl af gerðinni Daimler Double Six sem kom til Þorlákshafnar 11. október með flutningaskipinu Mykines frá Rotterdam í Hollandi. Færðu gerviefni inn í hesthús Lögregla lagði hald á fíkniefnin þegar bíllinn kom til landsins og skipti þeim út fyrir gerviefni áður en bíllinn var afhentur þremur mannanna, Sigfús Bergmanni, Baldri Þór og sjötta manninum, þann 24. október. Mennirnir færðu síðan þeim fjórða, Agurim, bílinn í Reykjavík þar sem hann reyndi árangurslaust að fjarlægja efnin úr bílnum. Daginn eftir flutti Agurim bílinn, ásamt Sigurði Ragnari, að hesthúsahverfi þar sem Sigurður Ragnar rétti Agurim og kærustu sinni efnin og þau báru efnin inn í nærliggjandi hesthús. Lesa má ítarlega um framvindu málsins í yfirferð fréttastofu af aðalmeðferð málsins frá því í mars í fyrra.
Kristalamfetamíni smyglað í Jagúarbíl Fíkniefnabrot Dómsmál Smygl Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira