„Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 20:52 Tómas Þór Þórðarson fagnar nýjum reglum um áfengissölu á íþróttaleikjum. Vilhelm/Anton Brink „Þetta er frelsismál og það er forræðishyggja að banna þetta. Þetta er algjört ofríki borgar þegar þú þarft að díla við borgaryfirvöld um hvað þú selur á vellinum. Á sama tíma og hægt er að kaupa þetta á menningarviðburðum þar sem sumir borgarfulltrúar eru, en ekki hér.“
Þetta segir Tómas Þór Þórðarson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmaður í knattspyrnufélaginu Víkingi. Tilefnið er breytingar borgarráðs á reglum um veitinga- og gististaði sem gera íþróttafélögum kleift að selja áfengi að uppfylltum skilyrðum. Sjá einnig: Bjórinn nú leyfður á vellinum Tómas fagnar breytingunum, sem hann segir íþróttafélögum í Reykjavík kærkomnar. Áfengissala á íþróttaleikjum hefur verið áberandi í umræðunni undanfarin misseri og skiptar skoðanir verið á hvort leyfa ætti slíka sölu. „Þetta er ótrúlega mikilvægt fyrir tekjustofninn og svo líður mér svolítið eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989 og séum að fagna að bjórinn sé leyfður aftur,“ segir Tómas. „Hingað til hefur þetta verið algjör steypa. Hvernig farið hefur verið með félögin, hvaða húllahringi þau hafa þurft að hoppa í gegnum til þess að fá vínveitingaleyfi og/eða ekki.“ Lögreglan, sem gefið hefur jákvæðar umsagnir á leyfisumsóknir íþróttafélaganna um vínveitingaleyfi, hafi til að mynda þurft að vera viðstödd leiki í Víkinni þegar áfengi hefur verið til sölu. „Þannig að þetta er búið að vera algjört rugl en það er gott að kosningaár skili einhverju.“ Tómas segir mikinn vilja af hálfu íþróttafélaganna til að framkvæma áfengissölu vel og rétt. „Hjá okkur í Víkinni er sér bar þar sem er stappfullt af fullorðnu fólki sem selur, það er passað vel upp á þetta af því að það vilja allir gera þetta vel. Og það er svo svekkjandi hvernig horft hefur verið fram hjá því hversu vel íþróttafélögin vilja gera þetta. Og hvernig þau eru látin hoppa yfir hverja hindrun á fætur annarri,“ segir Tómas. „En það er gott að fólk játi villu síns vegar þrátt fyrir að þetta snýst náttúrlega allt um 16. maí. En við hjá íþróttafélögunum og Víkingi tökum þessu fagnandi.“
Áfengi í íþróttastarfi Áfengi Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Bundin og skilin eftir við ókunnug hús Fara fram á hámarksrefsingu yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira