„Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. febrúar 2026 12:52 Ingibjörg Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir mættust í pallborðinu á Vísi í vikunni. Vísir/Vilhelm Stjórnmálafræðingur segir málefnalegan mun á milli frambjóðenda til formanns Framsóknarflokkinn ekki mikinn. Munurinn liggi í stöðu þeirra innan flokksins og erfitt sé að spá fyrir um niðurstöðu kosninganna í dag.
Töluverð spenna er fyrir formannskosningu Framsóknarflokksins í dag þar sem tvær eru í framboði. Ingibjörg Isaksen er núverandi þingflokksformaður en Lilja Alfreðsdóttir varaformaður flokksins en situr ekki á þingi. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segist ekki hafa merkt mikinn málefnalegan mun þeirra á milli. „Fyrir seinustu kosningar hefði Lilja alltaf haft miklu sterkari stöðu heldur en Ingibjörg Isaksen sem hefur ekki náð sömu hæðum í frama í flokknum. En hún er á þingi og á því er auðvitað algjör grundvallarmunur og það er hennar styrkur í baráttunni hvað formlega stöðu varðar,“ sagði Eiríkur í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Hann segir að það sé klárlega akkilesarhæll Lilju í framboði til formanns að sitja ekki á þingi. „Það er bara virkilega erfitt fyrir formann í stjórnmálaflokki að taka við sitjandi utan þings, sér í lagi þegar flokkurinn er í stjórnarandstöðu. Væri flokkurinn í ríkisstjórn þá gæti formaður sest í ráðherrastól.“ „Svo er annað atriði sem gerir henni erfitt fyrir og það er hvað er langt í kosningar, heil þrjú ár.“ Ingibjörg hafi unnið á Framsóknarflokkurinn hafi legið lágt að undanförnu, sé rótgróinn flokkur og ætti að hafa sóknarfæri fram á við. Eiríkur segir erfitt að spá fyrir um niðurstöðu kosninganna í dag. „Fyrir seinustu kosningar hefði ég klárlega spáð því að Lilja Alfreðsdóttir myndi sigra í kjöri gegn Ingibjörgu Isaksen og hún hefur auðvitað haft sterkari stöðu í þjóðfélagsumræðunni almennt. Hins vegar held ég að Ingibjörg hafi unnið töluvert á að undanförnu og að hún hafi sótt meira í sig veðrið. En hvort að það dugi henni til sigurs, það kemur í ljós bara seinna í dag.“ Stórmerkileg staða Sama hvernig fer verður kona í fyrsta skipti kjörin formaður Framsóknarflokksins í dag. Valgerður Sverrisdóttir tók við embætti formanns til skamms tíma þegar Guðni Ágústsson sagði af sér sem ráðherra og formaður flokksins árið 2008. Valgerður gaf hins vegar ekki kost á sér sem formaður á flokksþingi í kjölfarið. „Mér finnst nú kannski lítið gert úr formannstíð Valgerðar með þeirri framsetningu, því að hún var auðvitað öflugur formaður fyrir Framsóknarflokkinn á sinni tíð,“ segir Eiríkur en bætir við að vissulega sé um tímamót að ræða. Þegar kona tekur við formennsku Framsóknarflokksins verður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eini karkyns formaður sem eftir er hjá þeim flokkum sem eiga sæti á Alþingi. „Það er auðvitað stórmerkileg staða og segir alveg feikimikla sögu að svo skuli vera.“
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Lögreglan varar foreldra við „Island Surge VPN“ „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Sjá meira