Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. febrúar 2026 06:44 Í skýrslunni segir að unnið sé að framleiðslu stálvirkis brúarinnar í Póllandi og að áætlað sé að fyrsta skip af þremur komi til landsins í mars. Sýn Vegagerðin hefur lagt fram tillögu um gjaldskrá fyrir nýja Ölfusárbrú, þar sem lagt er til að stakt gjald fyrir ferð um brúna yrði 495 krónur. Miðað er við verðlag í október 2028, þegar stefnt er að því að opna brúna.
Frá þessu greinir í stöðuskýrslu Vegagerðarinnar sem finna má á vef Alþingis. Gjaldskráin byggir á reynslu frá Hvalfjarðargöngunum og Vaðlaheiðargöngunum. Gert er ráð fyrir magnafslætti fyrir minnstu bíla, þannig að stakt gjald yrði ódýrast 250 krónur. Vegagerðin Umferð um eldri Ölfusárbrúa var að meðaltali 14.500 bílar á dag árið 2023 og án tillits til veggjalds er áætlað að um 60 prósent vegfarenda muni nýta gömlu brúna áfram og 40 prósent fara um nýju brúna. „Miðað við framsetningu á viðskiptaáætlun er áætlað að það hlutfall verði nokkuð lægra, eða um 36% af heildinni (og 64% fari þá um eldri brú). Við þá greiningu er m.a. horft tiL reynslu af innheimtu veggjalda í Hvalfjarðargöngum og Vaðlaheiðargöngum, og greiningu sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri vann með Vegagerðinni um greiðsluvilja vegfarenda. Byggt á forsendum þeirrar greiningar er áætlaður greiðsluvilji vegfarenda um nýja Ölfusárbrú á bilinu 470-550 kr,“ segir í skýrslunni. Umferðarspá um nýju brúna er um 7.225 bílar á dag á opnunarárinu 2028 og 10.025 bílar á dag árið 2040, án gjaldtöku. Með gjaldtöku er áætlaður fjöldi um 6.500 á opnunarárinu og um 9.000 árið 2040.
Árborg Ný Ölfusárbrú Vegagerð Vegtollar Samgöngur Flóahreppur Ölfus Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira