Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Landgræðsla í Þorlákshöfn á sér langa og merkilega sögu. Í aldanna rás hefur mikið magn sands borist upp úr fjörunni austan við byggðina og úr Ölfusárósi. Skoðun 17.4.2026 11:18
Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir Orkuveituna hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði. Það eigi enn eftir að staðfesta með þriðju borholu en ef þær rannsóknir verði staðfestar verði það stórkostleg tíðindi fyrir þjóðina. Innlent 16.4.2026 08:30
Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Heilmikil ábyrgð fylgir því að vera kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn og því er mikilvægt að fólk sem velst til þeirra starfa vandi til verka, komi fram af virðingu og segi satt og rétt frá. Sjálfstæðisflokkur hefur verið við völd í Sveitarfélaginu Ölfusi síðustu tvö kjörtímabil eða frá sveitarstjórnarkosningum árið 2018. Ekki er hægt að segja að sá hópur sem með völdin hefur farið síðustu ár hafi alltaf vandað sig í samskiptum eða komið fram af fullri virðingu við fólk sem lagt hefur sig fram við að vinna samfélaginu gagn. Skoðun 16.4.2026 06:47
Ekið á mann í Þrengslunum Ekið var á bílstjóra flutningabíls í Þrengslunum í dag. Hann hafði að sögn lögreglu lent í vandræðum í brekku vegna mikillar hálku og stóð fyrir utan bílinn þegar öðrum bíl var ekið utan í hann. Innlent 28. mars 2026 13:37
Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Herjólfur bíður í um tuttugu mínútna fjarlægð frá Þorlákshöfn eftir því að sigla að landi. Ófært er eins og er. Skipið lagði af stað klukkan níu í morgun og var áætlað rétt fyrir klukkan 12 að landi. Innlent 26. mars 2026 12:33
Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Innlent 25. mars 2026 22:10
Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Af hverju eru íbúar í sumum sveitarfélögum ánægðari en í öðrum? Ef við vitum hvernig hamingjan verður til, af hverju er það ekki gert alls staðar? Er hamingjan einfaldlega spurning um ákvarðanir? Skoðun 20. mars 2026 10:31
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. Innlent 4. mars 2026 08:30
Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi segist styðja lista Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi af heilum hug og hann lofar því að hann muni ekki flytja aftur til Vestmannaeyja en orðrómur um að hann blandist í bæjarmálapólitíkina þar hefur lifað góðu lífi. Innlent 3. mars 2026 16:30
Hlutverk sem ég tek með auðmýkt og ábyrgð Í gærkvöldi, á fjölmennasta aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins Ægis í Ölfusi frá upphafi, var framboðslisti D-listans samþykktur og mér falin sú mikla ábyrgð að leiða listann í komandi kosningum. Það er heiður sem ég tek með auðmýkt og djúpu þakklæti. Skoðun 3. mars 2026 16:02
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Sjálfstæðisfélagið Ægir í Ölfusi hefur kynnt D-listann í Ölfusi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Athygli vekur að efstu sex sætin eru skipuð sömu frambjóðendum og fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 en eina breytingin er sú að Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi og Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar, býtta á sætum. Innlent 2. mars 2026 23:02
Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Vegagerðin hefur lagt fram tillögu um gjaldskrá fyrir nýja Ölfusárbrú, þar sem lagt er til að stakt gjald fyrir ferð um brúna yrði 495 krónur. Miðað er við verðlag í október 2028, þegar stefnt er að því að opna brúna. Innlent 20. febrúar 2026 06:44
Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. Innlent 19. febrúar 2026 14:20
Frítt Strax frá og með næstu mánaðamótum verða leikskólar í Ölfusi gjaldfrjálsir. Með ákvörðun sem var tekin á fundi bæjarráðs núna fyrr í dag mun öllum börnum standa til boða 36 tíma skólaganga foreldrum þeirra að kostnaðarlausu, án tillits til tekna þeirra. Skoðun 19. febrúar 2026 13:45
Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsvegi, við gatnamótin að Þorlákshöfn, þegar vörubíll hafnaði aftan á fólksbíl. Lokað var fyrir umferð um veginn um tíma. Einn var fluttur á sjúkrahús. Innlent 13. febrúar 2026 11:21
Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Íslenski drykkjarframleiðandinn Icelandic Glacial er nýr styrktaraðili liðs á LIV-mótaröðinni í golfi. Sádar stofnuðu mótaröðina til höfuðs PGA-mótaröðinni árið 2022 til þess að fegra eigin ímynd með svokölluðu íþróttaþvætti. Viðskipti innlent 10. febrúar 2026 08:57
Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028. Innlent 9. febrúar 2026 19:45
„Þörfin er gríðarleg“ „Þörfin er gríðarleg því bara á næstu 5 árum þurfum við hátt í 100 ný rými hér á Suðurlandi. Það má ekki missa sjónar á því að þetta mál snýst ekki um steypu eða stefnu, þetta snýst um það hvernig aðbúnað við viljum tryggja eldri borgurunum okkar. Það þarf að hugsa út fyrir boxið og viðurkenna að það gerir enginn neitt einn. Ríki, sveitarfélög og einkaaðilar þurfa að sameina krafta sína ef ekki á illa að fara. Við hér í Ölfusi ætlum að verða hluti af þessari lausn, með hagsmuni eldri borgara að leiðarljósi,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, sem berst nú fyrir því að hjúkrunarheimili verði byggt í Þorlákshöfn. Innlent 9. febrúar 2026 17:04
Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Skjálftahrina hefur verið í gangi frá því síðdegis í gær við Lambafell sem er vestur af Þrengslum. Stærsti skjálftinn hingað til hefur mælst þrjú stig að stærð. Innlent 28. janúar 2026 06:35
Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Tveir voru handteknir af lögreglu í Þorlákshöfn í gær grunaðir um kannabisræktun. Innlent 27. janúar 2026 14:21
Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Nokkuð tjón varð af völdum reyks og hita þegar eldur kviknaði í veitingastaðnum Svarta sauðnum í dag. Staðurinn var mannlaus þegar eldurinn kom upp. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Innlent 16. janúar 2026 15:53
Tvær akgreinar í hvora átt frá Rauðavatni að Markarfljóti Á ársþingi Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var 23 – 24 október 2025 komu saman kjörnir fulltrúar allra sveitarfélaga á Suðurlandi. Ársþingið er vettvangur þar sem sameiginleg sýn sveitarfélaga er lögð fram ásamt áherslumálum þar sem sameiginlegur flötur hefur náðst. Skoðun 15. janúar 2026 10:32
Miklar tafir á Hellisheiði vegna slyss Miklar umferðartafir urðu á Hellisheiði vegna umferðarslyss tveggja bíla við gatnamót Suðurlandsvegar og Þrengslavegar. Tveir voru í hvorum bíl og enginn var fluttur á sjúkrahús eða slasaðist alvarlega. Innlent 9. janúar 2026 18:13