Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 21. febrúar 2026 12:09 Það er nóg að gera í Hlíðarfjalli og veðrið leikur við gestina. Vísir/Tryggvi Sólin skín á snæviþakinn Eyjafjörð og sjaldan ef nokkurn tímann verið jafnmikið að gera í Hlíðarfjalli. Alla og ömmur þeirra langar að komast í brekkuna og umferðin er slík að lögreglan þurfti að skerast í leikinn.
Það viðrar frábærlega til skíðaiðkunar á Akureyri í dag eins og sést glöggt á aðsókninni í Hlíðarfjall. Bílaröðin nær nánast niður í byggð og lögreglan hefur lokað veginum tímabundið á meðan mest lætur. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður harmar það að geta ekki boðið upp á fleiri bílastæði. „Það er náttúrlega bara yndislegt veður og allar brekkur fullar af snjó og bærinn stappaður af fólki í vetrarfríi. Það eru bara allir að reyna að komast á skíði í sama tíma,“ segir hann. Skjáskot úr vefmyndavél Hlíðarfjalls um hádegisbilið.Skjáskot Hann segir lögregluna þar í bæ hafa tímabundið lokað fyrir umferð upp í Hlíðarfjall á meðan versta teppan gekk yfir en að hleypt verði aftur upp í fjall um leið og gestir fara að tínast aftur í bæinn. Ertu með einhver ráð fyrir fólk í skíðahugleiðingum? „Nei, en ég er með ráð fyrir sveitarfélögin: ekki hafa öll vetrarfríin á sama tíma,“ segir Brynjar. Hann segir hátt á fjórða þúsund manns hafi gert sér ferð upp í fjallið í gær og að í dag komi jafnvel fleiri.
Skíðasvæði Akureyri Lögreglumál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Sjá meira