Þórsarar upp úr fallsæti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2026 17:37 Oddur Gretarsson skoraði sjö mörk í mikilvægum sigri Þórs á Selfossi. þór akureyri Þór Ak. lyfti sér upp úr fallsæti í Olís-deild karla í handbolta með sigri á Selfossi, 33-35, í mikilvægum botnslag í dag.
Þórsarar eru nú komnir með ellefu stig, jafn mörg og Selfyssingar. Liðin eru í 9. og 10. sæti deildarinnar en liðin sem enda þar falla hvorki né komast í úrslitakeppnina. Aðeins eitt stig skilur Þórsara og Selfyssinga og HK-inga, sem eru í 8. sætinu, að. Stjörnumenn eru í 11. sætinu með níu stig og ÍR-ingar á botninum með sjö stig. Öll liðin eiga eftir að leika fjóra leiki í deildarkeppninni. Hafþór Már Vignisson skoraði níu mörk fyrir Þór í dag, Oddur Gretarsson sjö og Brynjar Hólm Grétarsson sex. Leikurinn í dag var jafn en Þórsarar voru jafnan fetinu framar. Staðan í hálfleik var 17-17. Hannes Höskuldsson minnkaði muninn í 26-27 fyrir Selfoss um miðjan seinni hálfleik en Þór skoraði þrjú af næstu fjórum mörkum og náði þriggja marka forskoti, 27-30, fyrir lokakaflann. Þar héldu gestirnir frá Akureyri vel á spöðunum og lönduðu tveggja marka sigri, 33-35. Hannes skoraði ellefu mörk fyrir Selfoss, þar af sjö úr vítaköstum, og var markahæstur á vellinum. Selfyssingar hafa tapað fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum. Þórsarar, sem hafa unnið tvo af síðustu fjórum leikjum sínum, taka á móti Haukum í næstu umferð Olís-deildarinnar, 4. mars. Daginn eftir mætir Selfoss HK í Kórnum.
Olís-deild karla UMF Selfoss Þór Akureyri Mest lesið Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum Handbolti Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Enski boltinn Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Fleiri fréttir Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn