Þór Akureyri

Þór Akureyri

Fréttir af Íþróttafélaginu Þór á Akureyri.

Fréttamynd

Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val

Tveir leikir voru á dagskrá í lokaumferð neðri hluta Bestu deildar kvenna í gær þar sem þrjú lið börðust um að forðast tvö fallsæti. Þór/KA hélt sér uppi með sigri í Víkinni og felldi þar með Víking og Val.

Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

,,Mikið í gangi í hausnum núna”

Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA, sagðist hafa fundið fyrir miklum létti eftir tveggja marka sigur á Víkingi sem tryggði liðinu áframhaldandi veru í Bestu deild kvenna. Hún var stolt af viðbrögðum liðsins eftir tap í síðustu umferð en sagði vonbrigði með tímabilið einnig hafa verið ofarlega í huga.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Í skýjunum með dönsku ný­lenduna í Þorpinu

„Þetta var aldrei í hættu, við mættum vel innstilltir í þetta og bara kláruðum þennan leik, ógeðslega sáttur með þetta“ sagði Þórður Tandri Ágústsson, leikmaður Þórs eftir frábæran sigur á grönnunum í KA í Olís-deildinni í handbolta.

Handbolti
Fréttamynd

Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akur­eyri

Þórsarar fögnuðu sætum sigri á grönnum sinum í KA þegar liðin mættust í KA heimilinu í þriðju umferð Olís deildar karla í kvöld. Lokatölur 31-35 en úrslitin réðust ekki fyrr en á lokamínútu leiksins.

Handbolti
Fréttamynd

„Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálf­leikinn“

„Frábær byrjun. Erum gjörsamlega með þá hérna í byrjun og skorum þetta mark. Leiðinlegt að ná ekki að skilja meira eftir í þessum kafla því það voru stöður og augnablik til þess að gera meira og refsa þeim enn þá betur,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir tapið.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Þórsarar komnir á blað

Þór frá Akureyri er kominn á blað í Olís-deild karla í handbolta eftir fimm marka sigur, 36-31, á HK norðan heiða í annarri umferð deildarinnar.

Handbolti
Fréttamynd

„Fannst við bara baka þá“

Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var mjög ánægður með frammistöðuna og stigin þrjú þegar Þór vann mikilvægan 1-0 sigur gegn FH á VÍS vellinum í síðustu umferð Bestu deildar karla fyrir skiptingu.

Íslenski boltinn