Skautað framhjá þjóðinni Júlíus Valsson skrifar 23. febrúar 2026 16:01 Með þingsályktun nr. 1/137, sem samþykkt var 16. júlí 2009, fól Alþingi ríkisstjórninni að leggja fram umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið skyldi haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Óvíst er hvort þingsályktunin sé enn í fullu gildi. Þjóðin var ekki spurð álits, enda var talið að hún hefði ekki fullnægjandi þekkingu á málinu. Þáverandi ríkisstjórn ákvað að hefja yfirferð á umsóknarferlinu, „kíkja í pakkann“, sem reyndist fela í sér 35 samningskafla og tókst ríkisstjórninni að ljúka yfirferð á 7 af 35 köflum áður en ferlinu var lokað tímabundið árið 2011. Ellefu köflum var aftur lokað tímabundið. Þeir viðkvæmu kaflar sem ekki voru opnaðir voru þeir kaflar sem skiptu Ísland mestu máli svo sem landbúnaðarmál og dreifbýlisþróun, matvælastefna og fæðuöryggi, fiskveiðistefna og orkumál, meðal annars vegna vatnsréttinda og virkjanastefnu, dómsmál og mannréttindamál, réttarfars- og innanríkismál, landamæramál (Schengen-samþætting og fleira), innri markaðurinn og fyrirvarar, það er að segja ákvæði í lokasamningnum. Nú, 17 árum síðar, hyggst ríkisstjórnin efna til atkvæðagreiðslu um „framhald samningaviðræðna“ eða „framhald aðildarviðræðna“ við Evrópusambandið. Fyrri viðræður voru hafnar án þess að leita eftir samþykki þjóðarinnar og þjóðin hefur ekki verið upplýst nægilega vel um það sem þegar hefur verið samið um. Ætti ekki fyrst að leita álits þjóðarinnar á því hvort hún samþykkir þá samninga sem þegar hafa verið gerðir, án hennar samþykkis og/eða vitundar, áður en haldið er lengra? Hver eru samningsmarkmið núverandi ríkisstjórnar? Um hvaða atriði hyggst hún semja? Er stefnt að varanlegum undanþágum eða tímabundnum sérlausnum? Er slíkt í boði? Ætti ekki fyrst að upplýsa þjóðina um þessi atriði og leita eftir samþykki hennar? Getur ríkisstjórnin efnt til bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um atriði sem samræmast ekki stjórnarskrá íslenska lýðveldisins? (Þjóðaratkvæðagreiðslur á íslandi eru í eðli sínu pólitískt bindandi.)Ætti ekki fyrst að leita samþykkis þjóðarinnar fyrir slíkum breytingum á stjórnarskránni? Höfundur er læknir og fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Með þingsályktun nr. 1/137, sem samþykkt var 16. júlí 2009, fól Alþingi ríkisstjórninni að leggja fram umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið skyldi haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Óvíst er hvort þingsályktunin sé enn í fullu gildi. Þjóðin var ekki spurð álits, enda var talið að hún hefði ekki fullnægjandi þekkingu á málinu. Þáverandi ríkisstjórn ákvað að hefja yfirferð á umsóknarferlinu, „kíkja í pakkann“, sem reyndist fela í sér 35 samningskafla og tókst ríkisstjórninni að ljúka yfirferð á 7 af 35 köflum áður en ferlinu var lokað tímabundið árið 2011. Ellefu köflum var aftur lokað tímabundið. Þeir viðkvæmu kaflar sem ekki voru opnaðir voru þeir kaflar sem skiptu Ísland mestu máli svo sem landbúnaðarmál og dreifbýlisþróun, matvælastefna og fæðuöryggi, fiskveiðistefna og orkumál, meðal annars vegna vatnsréttinda og virkjanastefnu, dómsmál og mannréttindamál, réttarfars- og innanríkismál, landamæramál (Schengen-samþætting og fleira), innri markaðurinn og fyrirvarar, það er að segja ákvæði í lokasamningnum. Nú, 17 árum síðar, hyggst ríkisstjórnin efna til atkvæðagreiðslu um „framhald samningaviðræðna“ eða „framhald aðildarviðræðna“ við Evrópusambandið. Fyrri viðræður voru hafnar án þess að leita eftir samþykki þjóðarinnar og þjóðin hefur ekki verið upplýst nægilega vel um það sem þegar hefur verið samið um. Ætti ekki fyrst að leita álits þjóðarinnar á því hvort hún samþykkir þá samninga sem þegar hafa verið gerðir, án hennar samþykkis og/eða vitundar, áður en haldið er lengra? Hver eru samningsmarkmið núverandi ríkisstjórnar? Um hvaða atriði hyggst hún semja? Er stefnt að varanlegum undanþágum eða tímabundnum sérlausnum? Er slíkt í boði? Ætti ekki fyrst að upplýsa þjóðina um þessi atriði og leita eftir samþykki hennar? Getur ríkisstjórnin efnt til bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um atriði sem samræmast ekki stjórnarskrá íslenska lýðveldisins? (Þjóðaratkvæðagreiðslur á íslandi eru í eðli sínu pólitískt bindandi.)Ætti ekki fyrst að leita samþykkis þjóðarinnar fyrir slíkum breytingum á stjórnarskránni? Höfundur er læknir og fullveldissinni.
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar