KK aldrei borgað minna í húsnæðislán en þegar Bjarni var ráðherra Stefán Árni Pálsson skrifar 24. febrúar 2026 15:03 KK er einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar og hefur verið það í áratugi. Þeir eru ófáir karlmennirnir sem heita Kristján Kristjánsson á landinu en það er bara einn KK. Hödd Vilhjálmsdóttir kíkti í heimsókn til hans í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi og ræddi við hann atvinnuferil KK sem tónlistarmanns sem nær aftur til ársins 1985 og eru því rúmlega 40 ár síðan hann fór að hafa tónlist að atvinnu.
Fyrsta plata hans, The Lucky One, kom síðan út árið 1991 og vakti mikla athygli, en meðal vinsælustu laga hennar eru „Your Rainbow,“ „True to You“ og að sjálfsögðu „The Lucky One“. Þetta var nú bara rétt svo byrjunin á útgáfu listamannsins, sem er með vel á þriðja tug platna undir beltinu. Þau lög hans sem eru hvað þekktust eru „Vegbúi,“ „Besti vinur“ og „Þjóðvegur 66“. KK er fyrir löngu orðin goðsögn. Kristján verður sjötugur þann 26. mars næstkomandi og heldur þá tvenna tónleika í Háskólabíói. Hann er sem sagt hvergi af baki dottinn og virðist eiga nóg til. En hvernig semur KK tónlist? „Þá tek ég gítar oftast og svo fer ég eitthvað að djamma og spila bara eitthvað. Svo er ég bara leika mér. Ég lít upp og horfi niður út um allt. Ég er bara að leika mér og svo finn ég eitthvað og hef gaman af,“ segir Kristján. KK hefur í gegnum tíðina unnið mikið með öðrum tónlistarmönnum, líklega hvað mest systur sinni Ellen Kristjáns og vini sínum Magnúsi heitnum Eiríkssyni. Hann er líka vinsæll til samvinnu hjá yngri kynslóðinni og má nefna Múgison, Bríeti og Jón Jónsson í því samhengi. Nýtur þess í botn En er eitthvað öðruvísi að vinna með tónlistarmönnum í dag en það var? „Já, hver og einn þeirra er alveg sérstakur. Bríet er alveg sérstök, Mugi sérstakur og Jón íslenskur og Maggi Eiríks sérstakur. Því ég fæ að vera með þeim. Ég nýt þess alveg botn.“ Nýverið kom út hugljúfa ástarlagið „Gleymmérei“ sem umrædd Bríet samdi og syngur með KK. KK segir hvern tónlistarmann einstakan. „Ég dáist að henni og að fá að vinna með henni. Það er alveg æðislegt. Sama gildir með Jón Jónsspm og Mugison og þetta eru allt sendiboðar sem gleðja okkur og minna okkur á hvað lífið snýst um, kærleikann og það er það sem þetta fjallar um allt saman,“ segir KK. En ef Kristján væri ekki tónlistarmaður hefði hann vel getað hugsað sér að vera rótari en þar sem honum leiðist nú ekki athyglin er hann ekkert endilega viss um að hann hefði haldið sig frá sviðinu og míkrafóninum. En einnig gæti hann hugsað sér að vera sjómaður. „Ég hugsa að ég hefði verið sjómaður. Ég áttaði mig bara ekki á því nægilega snemma. Ég fór í Sjómannaskólann, Stýrimannaskólann, þegar ég var orðinn svo gamall, 62 ára og er með 45 metra og 500 tonna réttindi. Ég hefði getað farið bara að sigla á togara sem stýrimaður.“ Stéttin sem hefur fórnað mestu En hvað er það við sjóinn sem heillar? „Er þetta ekki bara þessi eyja okkar? Sjómennska, þetta er, þetta er stéttin sem hefur fórnað mestu fyrir Ísland frá því að land byggðist þarna fyrst fyrir þúsund árum síðan. Það er sjómannastéttin og fólkið þeirra.“ Kristján hefur aldrei verið óhræddur við að viðra skoðanir sínar en segir að fyrir um þrjátíu árum síðan hafi hann allur farið að mýkjast og hætt að skipta fólki í einhverja hópa. „Gott fólk og ekki gott fólk og fólk sem er með þessi ankannalegu undarlegu sjónarmið um að fólk sé með eitthvað plott um að níðast á öðru fólki. Ég bara trúi því bara ekkert upp á fólk lengur. Það er bara ekki þannig, fólk er með mismunandi skoðanir um því hvernig eigi að reka samfélagið og það er allt annað dæmi.“ KK og Mugison. Hann segist styðja sitjandi ríkisstjórn og ráðamenn þjóðarinnar til góðra verka og er á því að flestir séu og hafi verið að reyna að gera sitt besta. „Stjórn Katrínar og Bjarna Ben á sínum tíma er mjög merkileg stjórn, ein merkilegasta stjórn sem hefur verið uppi. Og ég held að það hafi gengið mjög vel hjá þeim á meðan Bjarni var fjármálaráðherra. Þá held ég að bestu kjörin hafi verið til dæmis á íbúðalánum. Ég er búinn að vera að borga í íbúðalán alla ævi og bara bestu kjörin hafa verið á meðan hann var fjármálaráðherra og ég segi þetta við fólk og það segir: „Það er ekkert að marka, það var út af stjórninni sem var á undan honum.“,“ segir KK. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Tónlist Ísland í dag Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira