Sjáðu mörkin, rauðu spjöldin og takka í höfði á ögurstundu Sindri Sverrisson skrifar 26. febrúar 2026 10:30 Það var dæmt víti á Dortmund þegar takkarnir á skó Ramy Bensebaini fóru í höfuð Nikola Krstovic. Getty/Alessio Morgese Real Madrid, PSG, Atalanta og Galatasaray hirtu í gærkvöld síðustu fjögur sætin í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Nóg var af mörkum, rauðum spjöldum og dramatík í leikjunum í gær eins og sjá má í klippum á Vísi.
Real Madrid lenti 1-0 undir gegn Benfica en að lokum var það Vinicius Junior sem tryggði liðinu 2-1 sigur, eftir að hafa einnig skorað í 1-0 sigrinum á útivelli. Atalanta var 2-0 undir í einvígi sínu við Dortmund en vann 4-1 í gær. Það sauð allt upp úr í lok leiks þegar dæmt var víti á Ramy Bensebaini fyrir háskaleik, en takkarnir á skó hans fóru í höfuð Nikola Krstovic og blóðguðu hann. Bensebaini fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt en Lazar Samardzic skoraði úr vítinu og sendi Atalanta áfram. Juventus missti líka mann af velli með rautt spjald, Lloyd Kelly, á 48. mínútu gegn Galatasaray. Þá var staðan 1-0 en heimamenn náðu samt að komast í 3-0 og knýja fram framlengingu, eftir að hafa tapað 5-2 í Tyrklandi. Í framlengingunni skoruðu gestirnir hins vegar tvö mörk og komust áfram. Meistarar PSG komust svo áfram með 2-2 jafntefli við Monaco á heimavelli, eftir 3-2 sigur í fyrri leiknum. Monaco komst í 1-0 en svo var Mamadou Coulibaly rekinn af velli á 58. mínútu og strax í kjölfarið jafnaði PSG, og komst svo fljótt yfir. Jordan Teze jafnaði í uppbótartíma en það dugði ekki til.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Fótbolti Fleiri fréttir Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Sjá meira