Komst norður í snjó, búskap og dorg: „Dásamlegt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 27. febrúar 2026 10:01 Tryggvi fagnaði því mjög að komast heim í sveitina. Vísir/Lýður Valberg Tryggvi Snær Hlinason tók auka frídögum fyrir yfirstandandi landsliðsverkefni fagnandi. Það er ekki oft sem hann getur farið á heimaslóðir á miðju tímabili.
Tryggvi er alinn upp í Svartárkoti í Bárðardal og frægt er að hann ætlaði sér seint að verða körfuboltamaður. Hugurinn var frekar við búskap þegar tækifærið gafst til að kasta bolta í körfu á Akureyri. Klippa: Munaði öllu að komast heim í sveitina Hann er nú meðal allra bestu körfuboltamanna landsins og leikur með Bilbao á Spáni. Hann segir dýrmætt að hafa fengið auka frí fyrir landsleiki Íslands við Litáen í undankeppni HM. Frí sem hann hafi nýtt til að kíkja á fjölskylduna í Bárðardal. „Í þetta skiptið var ég svo heppinn að komast heim í tvo daga. Ég fékk að fara á Norðurlandið, í snjóinn, ísinn, kindurnar og að dorga smá. Það var alveg dásamlegt. Það er alltaf gott að komast aðeins heim og brjóta upp hversdagsleikann úti,“ segir Tryggvi í samtali við Sýn. „Það er frábært að hitta fólkið mitt, knúsa þá sem skipta mig máli og að borða matinn sem er gerður heima sem maður saknar svolítið.“ Vilja verja Evróputitilinn Annars gengur lífið sinn vanagang í Baskalandi þar sem liði Tryggva, Bilbao Basket, hefur gengið betur í ár en í fyrra heima fyrir. „Það gengur frekar vel, bæði í Evrópudeildinni og spænsku deildinni. Það er gaman að horfa svolítið upp á við í staðinn fyrir á þá fyrir neðan. Það er gaman og gengur vel, það er góður hópur af strákum þar. Ég er mjög ánægður,“ segir Tryggvi. Liðið vann Evrópubikartitil á síðasta ári og er nú komið í 8-liða úrslit keppninnar eftir fína frammistöðu í vetur. Ekki stendur annað til en að verja titilinn. „Við erum í mjög góðri stöðu til þess. Núna eru þessi tveggja leikja umspil fram undan. Þá er mikilvægt að vera tilbúinn í hvern leik og taka á því í hvert skipti. Það er náttúrulega eina vitið að ætla að verja þennan titil og lyfta þessum bikar aftur,“ segir Tryggvi sem kemur í toppstandi til leiks. Klár í 80 mínútur af barningi „Persónulega er líkaminn minn bara upp á tíu og ég er til í þessa bardagaleiki sem eru fram undan,“ segir Tryggvi. Mikið mætt á honum í landsleikjum Íslands þar sem hann hefur hæð og eiginleika sem aðrir í liðinu búa ekki yfir. Hann hefur á köflum spilað hátt í 40 mínútur í nánast hverjum einasta leik liðsins. Er hann klár í 80 mínútur gegn Litáum í kvöld og á mánudag? „Já, já. Við gerum það sem við þurfum að gera. Við ætlum okkur að reyna að ná í sigur eða tvo. Það þýðir bara að hver einasta mínúta sem þarf að lemjast aðeins inni á þessum velli er það bara heiður,“ Mikilvægir leikir í jöfnum riðli Einstök staða er í riðli Íslands, þar sem öll fjögur liðin eru jöfn að stigum, með þrjú talsins. Ísland fékk tvö stig fyrir frábæran útisigur á Ítalíu í fyrsta leik en fylgdi því eftir með slæmu tapi fyrir Bretum hér heima. Staðan í riðli Íslands gæti vart verið jafnari.Skjáskot/Wikipedia Litáen marði Breta með eins stigs mun í fyrsta leik en tapaði svo með eins stigs mun fyrir Ítölum. Ísland mætir nú Litáen heima og heiman í komandi leikjum. Í Laugardalshöll á föstudag og ytra á mánudag. Leikirnir tveir við Litáen eru því gríðarmikilvægir. „Þeir eru risastórir. Ef við ætlum að komast á HM, það á mikið eftir að gerast þangað til, en við erum í fínni stöðu eftir góðan sigur á Ítalíu. Ef allt fellur með okkur munu Bretarnir detta út svo sá ósigur skipti ekki miklu máli á endanum. En í fyrsta lagi er þetta leikur á föstudaginn og svo á aftur mánudaginn. Við þurfum bara fullan fókus og ná í annan sigur, ná í eins marga sigra og hægt er fyrir næsta riðil,“ „Það eru sterkar og stórar þjóðir sem eiga heima á HM þarna en við ætlum að reyna að troða okkur þar inn,“ segir Tryggvi. Viðtalið má sjá í spilaranum efst.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Enski boltinn Fleiri fréttir Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Sjá meira