„Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Sindri Sverrisson skrifar 28. febrúar 2026 10:33 Jóhannes Karl segir FH-inga hafa í aðdraganda leiksins reynt að fá honum frestað í ljósi veðurspárinnar en að Fylkismenn hafi ekki viljað hlusta á það. Samsett/Vísir/LIVEY Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, óttaðist um öryggi leikmanna á snævi þöktu gervigrasi í Árbæ í gær og ákvað að hætta leik í hálfleik. Hann harmar að dómari leiksins hafi ekki gripið í taumana og að Fylkismenn hafi ekki viljað fresta leiknum í ljósi veðurspárinnar. „
Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður að mínu mati sem hefðu getað haft alvarlegar afleiðingar fyrir leikmenn,“ sagði Jóhannes Karl við Vísi í dag. FH og Fylkir áttust við Árbænum í gær í Lengjubikarnum og voru aðstæður vægast sagt erfiðar vegna snjókomu. Fylkismenn voru 1-0 yfir eftir fyrri hálfleik en aldrei kom til þess að seinni hálfleikur færi í gang þar sem Jóhannes Karl hafði þá séð nóg og ákveðið að stofna ekki heilsu leikmanna í frekari hættu. Augljóst að leikmenn réðu ekki lengur við aðstæður „Mér fannst rosalega skrýtið að dómaratríóið skyldi ekki stöðva leikinn að minnsta kosti í fyrri hálfleik, því það snjóaði mjög mikið og mér fannst augljóst að leikmenn réðu ekki lengur við það sem þeir voru að reyna að gera. Þeir stóðu ekki í lappirnar, snjórinn límdist við takkaskóna og menn voru að fljúga á hausinn. Gervigrasið er ekki það frábær kostur til að spila fótbolta, bara almennt út frá meiðslahættu, en þetta var orðin gríðarlega mikil áhætta fyrir okkur á þessum tímapunkti og mér fannst skrýtið að dómarinn skyldi ekki vilja hlusta á þau rök,“ sagði Jóhannes Karl. Hann lætur sér fátt um finnast þó að FH verði væntanlega dæmt 3-0 tap, og þó að margir hnýti nú í FH-inga fyrir að hafa ekki klárað leikinn. „Ég hef ekki áhyggjur af því en ég geri mér grein fyrir því að út á við lítur þetta ekki frábærlega vel út. En aðstæðurnar voru bara þannig [hættulegar] og leikmenn eru á minni ábyrgð. Þeirra heilsa skiptir mig gríðarlega miklu máli. Ég tók þessa ákvörðun út frá okkar hagsmunum, út frá heilsu leikmanna, en ekki almannaáliti.“ Viss um að dómarinn hefði flautað leikinn af í Bestu Eins og Jóhannes Karl benti á var um tíma varla hægt að sjá línurnar á vellinum og boltann. Um 35 mínútur liðu frá því að fyrri hálfleik lauk og þar til seinni hálfleikur var flautaður á, og var völlurinn hreinsaður á meðan, en Jóhannes Karl vildi ekki taka frekari áhættu aðeins mánuði áður en Besta deildin byrjar. „Það er stutt í mót og ég er nokkuð viss um að dómarinn hefði flautað þennan leik af ef þetta hefði verið leikur í mótinu. Við erum ekki með það stóran hóp og megum ekki frekar en flest lið í Bestu deildinni við því að missa leikmenn í meiðsli. Það var að kólna með kvöldinu, völlurinn að frjósa ofan í snjókomuna og orðinn flugháll. Mér fannst alveg galið að halda áfram og á endanum var það mín ákvörðun að fara ekki út aftur. Ég náttúrulega óskaði þess við dómarana að við myndum frekar klára leikinn á morgun eða sunnudag, ef vallaraðstæður væru þá fínar.“ Ótrúlegar senur á Tekk vellinum í Árbæ. Fylkir voru 1-0 yfir í hálfleik en FH mætir ekki út í seinni hálfleik og Helgi Mikael flautar leikinn af! Leik lokið og eins og @Maggihodd sagði ... Góða nótt! pic.twitter.com/CeENp4fa7K— Livey (@liveyevents) February 27, 2026 Höfðu reynt að fá leiknum frestað FH-ingar höfðu áður reynt að sannfæra Fylkismenn um að fresta leiknum. „Við reyndum bæði á fimmtudag og föstudag að fá Fylkismenn til að spila leikinn um helgina en ekki á föstudagskvöldinu, því það vissu það flestir að það yrði úrkoma og erfiðar aðstæður. En þeir vildu ekki hlusta á það. Þess vegna var líka svolítið pirrandi að sjá aðstæðurnar koma upp sem við höfðum verið að benda á, og menn vildu bara halda áfram að spila leikinn þrátt fyrir galnar aðstæður.“ En hvað sagði dómarinn, Helgi Mikael Jónasson? Hver voru hans rök? „Hann vildi meina að það væri ekkert að því að spila. Hann ákvað í hálfleik að bíða þar til 20 mínútum eftir að seinni hálfleikur hefði átt að vera byrjaður, með að flauta leikinn aftur á, og þá var ég bara búinn að taka ákvörðun fyrir mína leikmenn um að við værum ekki að fara aftur út á völlinn. Hvað þá eftir svona langan biðtíma inni.“
Lengjubikar karla FH Besta deild karla Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Fleiri fréttir Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Sjá meira