Viðskipti innlent

Bein út­sending: Orku­eyjan og alþjóð­leg sam­keppni

Atli Ísleifsson skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Vilhelm

„Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni“ er yfirskrift ársfundar Landsvirkjunar sem hefst í Hörpu klukkan 14. Hægt verður að fylgjast fundinum í spilaranum að neðan.

Á fundinum flytja ávörp þau Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar.

Þá flytur Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu, erindið Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði og Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, erindið Landsvirkjun í augum þjóðarinnar,

Á milli erinda Tinnu og Kristínar Lindu spjalla þeir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, við Þóru Arnórsdóttur, forstöðumann Samskipta. Hún er jafnframt fundarstjóri.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×