Ráðherra friðlýsti Grafarvoginn Atli Ísleifsson skrifar 4. mars 2026 14:03 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt Heiðu Björk Hilmisdóttur borgarstjóra og Líf Magneudóttir borgarfulltrúa og formaður umhverfis- og skipilagsráðs við friðlýsingu Grafarvogs. Þórdís Björt/Náttúruverndarstofnun Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Grafarvogs. Vogurinn er friðlýstur sem friðland og nær friðlýsingin til vogsins innan við Gullinbrú. Friðlýsingin var unnin í samstarfi Reykjavíkurborgar og Náttúruverndarstofnunar.
Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. Þar segir að verndargildi Grafarvogs sé hátt, en svæðið sé eitt af fáum svæðum í borginni þar sem enn finnist tiltölulega óraskaðar leirur. „Leirur eru viðkomustaður farfugla, einkum vaðfugla, og fóstra ríkulegt fuglalíf árið um kring. Vogurinn er þannig mikilvægur viðkomu- og fæðuöflunarstaður fyrir fjölda fuglategunda, en margar þeirra fuglategunda sem nýta svæðið eru á válista eða í yfirvofandi hættu. Má þar m.a. nefna fýl, hvítmáf, sendling og svartbak. Tillagan kveður á um friðlýsingu Grafarvogs innan þess svæðis sem græna línan afmarkar.Reykjavík/Loftmyndir ehf. Stórir hópar af rauðbrysting, sanderlu, lóuþræl, stelk, jaðrakan og sandlóu eru einnig reglulega á leirunum á fartíma, bæði um vor og á haustin. Þá er Grafarvogurinn lykilsvæði fyrir heiðlóur á haustin er þær hópa sig þar fyrir brottför. Grafarvogur er enn fremur vinsælt útivistarsvæði og er friðlýsingunni líka ætlað að tryggja aðgengi almennings að svæðinu til náttúruupplifunar, fuglaskoðunar og fræðslu. Viðstödd friðlýsinguna í dag voru, auk ráðherra og borgarstjóra, fulltrúar og starfsfólk Reykjavíkurborgar, ráðuneytisins, Náttúruverndarstofnunar og Náttúrufræðistofnunar.Stjr Hið friðlýsta svæði er 0,5 km² að stærð. Viðstödd friðlýsinguna voru, auk ráðherra og borgarstjóra, fulltrúar og starfsfólk Reykjavíkurborgar, ráðuneytisins, Náttúruverndarstofnunar og Náttúrufræðistofnunar,“ segir í tilkynningunni. Tryggður samastaður fyrir ýmsar fuglategundir Haft er eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að vogurinn sé ljómandi gott dæmi um friðlýsingu sem stuðli að líffræðilegri fjölbreytni, því þar sé tryggður samastaður fyrir ýmsar fuglategundir sem nýti voginn til að nærast og hvílast. + „Fólk nýtur þess líka að ganga meðfram voginum og með þessari friðlýsingu tryggjum við að náttúrulega umhverfið standi óbreytt, okkur og fuglunum til góða.“
Umhverfismál Fuglar Dýr Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira