Körfubolti

„Minnti á köflum á leik í minnibolta“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar á hliðarlínunni í leiknum í kvöld. 
Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar á hliðarlínunni í leiknum í kvöld.  Vísir/Hulda Margrét

Lárus Jónssson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, sagði leikmenn sína hafa verið ólíkir sjálfum sér þegar liðið fékk væna magalendingu gegn Stjörnunni í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. 

„Við vorum fljótir að grafa okkur holu og náðum aldrei að krafla okkur upp úr henni að einhverju viti. Við vorum litlir í okkur og þeir náðu að ýta okkur út úr flestöllu sem við ætluðum að gera. Þeir höfðu líkamlega yfirburði í þessum leik og því fór sem fór,“ sagði Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, svekktur.

„Það voru ítrekaðir tapaðir boltar og nokkrar aðgerðir okkar minntu frekar á leik í minnibolta en í meistaraflokki í efstu deild. Þetta var verulega slök frammistaða en nú þurfum við bara að skilja þennnan leik bakvið okkur og halda áfram,“ sagði Lárus þar að auki.

„Þetta er ekki leikur þar sem við bjuggumst við því að ná í stig en auðvitað vildum við ekki fá svona stóran skell. Undirbúningurinn var bara hefðbundinn í landsleikjahléinu og ekkert þar sem skýrir þessa spilamennsku,“ sagði hann.

„Ég held að þriggja mánaða æfingabúðir hefðu ekki breytt niðurstöðunni. Nú þurfum við bara að fara að undirbúa okkur vel fyrir næsta leik og koma betur gíraðir inn í næsta leik,“ sagði Lárus um framhaldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×