Sport

„Held þetta hafi verið allt sem við viljum úr þessum slag“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Kári var öflugur í liði Valsmanna í kvöld.
Kári var öflugur í liði Valsmanna í kvöld. Pawel Cieslikiewicz

Valur sigraði KR 92-90 á heimavelli í kvöld eftir hörku spennandi leik sem endaði í framlengingu. Leikurinn var lengst af jafn en mikilvægur þristur frá Kára Jónssyni og tvö vítaskot skildu liðin að og tryggðu Val sigurinn.

„Þetta var hörku leikur, tvö mjög góð lið og virkilega skemmtilegt að tækla þennan leik í dag. Held þetta hafi verið allt sem við viljum úr þessum slag,“ sagði Kári Jónsson, eftir sigur Vals á KR í kvöld.

„Frammistaðan var fín, við vorum þéttir varnarlega mestmegnis, Key og Callum voru svo að setja helvíti mörg skot framan af leik til að halda okkur í þessu.“

Það gerðist oftar en einu sinni að Kári reyndi við stigin þrjú en boltinn vildi bara ekki ofan í.

„Ég var orðin alveg þreyttur á þessu, mér fannst boltinn alltaf vera að skríða allan hringinn og uppúr. Þetta var vel pirrandi en síðasta karfan fór að minnsta kosti ofan í og sú karfa skipti svona mestu máli.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×