Enginn McGregor eða Jon Jones: Bardagarnir í Hvíta húsinu valda miklum vonbrigðum Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 10:36 Dana White tilkynnti í nótt hverjir munu mætast í Hvíta húsinu í sumar. Jack Gorman/Getty Images Dana White forstjóri UFC bardagafyrirtækisins staðfesti í nótt hvaða bardagakappar munu stíga inn í búrið í Hvíta húsinu í sumar, á afmæli Bandaríkjaforsetans Donald Trump. Keppendurnir sem voru kynntir hafa valdið aðdáendum UFC miklum vonbrigðum. „
Þó enginn efist um að bardaginn í Hvíta húsinu þann 14. júní verði sá stærsti í sögunni hvað umgjörðina varðar, verður að segjast að þessir bardagar valda miklum vonbrigðum Meira að segja UFC virðist skammast sín fyrir þetta, þess vegna eru þessir kappar kynntir á einhverjum litlum blaðamannafundi frekar en með pomp og prakt í almennilegri sjónvarpsútsendingu. Dana White viðurkenndi síðan að þetta væri ekki eins gott og hann hafði vonast“ segir í umfjöllun MMA Mania. Dana White sagði frá því á blaðamannafundi í nótt hvernig bardagakvöldinu yrði stillt upp. Stærstu nöfnin þar á blaði verða Justin Gaethje og Ilia Topuria í bardaga um léttvigtartitilinn og Alex Pereira og Ciryl Gane í bardaga um þungavigtartitilinn. Underwhelming card— Gable Steveson 🏆 (@Gablesteveson) March 8, 2026 Margir UFC aðdáendur höfðu vonast eftir stærri nöfnum á blað og þá höfðu glæsilegar endurkomur verið í umræðunni. Slúðrað var um að Conor McGregor eða Jon „Bones“ Jones, jafnvel báðir, myndu mæta aftur með látum. Svo verður ekki. „Aldrei, aldrei nokkurn tímann. Ég sagði ykkur það hundrað þúsund sinnum. Jon Jones var aldrei inni í myndinni. Í fyrsta lagi hef ég sagt af hverju ég vil ekki sjá hann. Í öðru lagi þá eru mjaðmir hans handónýtar. Ég veit ekki hvort þið sáuð fánafótboltaleikinn um daginn, hann gat varla hlaupið. Jon Jones hætti út af meiðslum í mjöðmunum. Hann er með mjaðmagigt. Læknarnir segja að hann eigi að fara í mjaðmaskipti. Þið getið bætt því við listann yfir ástæður þess að ég vilji ekki sjá hann,“ sagði Dana White um Jon Jones.
MMA Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira