Sögulegar sættir eftir að annar þeirra hafði verið við dauðans dyr Aron Guðmundsson skrifar 9. mars 2026 11:20 Jorge Masvidal og Ben Askren voru allt annað en vinir árið 2019 þegar að þeir mættust í bardagabúrinu á vegum UFC. Vísir/Getty Sögulegar sættir áttu sér stað um helgina þegar að fyrrverandi UFC bardagakapparnir Ben Askren og Jorge Masvidal slíðruðu sverðin sín á milli. Askren veiktist illa á síðasta ári og var við dauðans dyr en hefur nú náð sér. Kapparnir tveir sjá lífið í nýju ljósi.
Askren og Masvidal mættust í bardagabúrinu í júlí árið 2019 í bardaga sem entist aðeins í fimm sekúndur. Á þeim tíma tókst Masvidal að rota Askren með fljúgandi hnésparki en fyrir bardagann höfðu þeir átt í hörðum orðaskiptum og andaði einnig köldu á milli þeirra eftir bardagann. Askren veiktist hins vegar illa á síðasta ári. Hann fékk afar slæma lungnabólgu eftir bakteríusýkingu og endaði á því að þurfa að fá ný lungu. Askren var vart hugað líf á einum tímapunkti og sjálfur segist hann hafa dáið fjórum sinnum. Askren sagði sína sögu á samfélagsmiðlum á sínum tíma og fékk meðal annars heillaóskir frá Masvidal í kjölfarið. Það var hins vegar á dögunum sem kapparnir tveir hittust augliti til auglitis í fyrsta skipti í langan tíma. Sögulegar sættir náðust þeirra á milli. „Ég lærði það síðasta sumar að lífið er of stutt, klárlega of stutt til þess að eiga í deilum,“ skrifaði Askren í færslu á samfélagsmiðlum á laugardaginn síðastliðinn þar sem með fylgdi mynd af honum og Masvidal. View this post on Instagram A post shared by Ben Askren (@benaskren) Það var Masvidal sem átti frumkvæðið að hittingi þeirra. Hann heimsótti Askren á heimili hans í Wisconsin. „Við settumst niður saman, borðuðum kvöldmat og ræddum málin. Þar kemur í ljós að við eigum meira sameiginlegt en ekki.“ Þeir grófu stríðsaxirnar og eru nú vinir.
MMA Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira