Fólk sem treystir ekki þjóð til að hafa vit fyrir sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar 10. mars 2026 07:03 Nú liggur fyrir að ríkisstjórn Íslands ætlar að fela íslenskri þjóð að ákveða eigin örlög og hefur efnt til þjóðaratkvæðis um hvort landið eigi að fara í viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Þar er ekki verið að spyrja hvort Ísland eigi að ganga inn, heldur hvort það eigi að fara í viðræður á ný. Um er að ræða svokallaða tvöfalda atkvæðagreiðslu af sama toga og forsvarsmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem þá var leiddur af núverandi formanni Miðflokks, vildu að farið yrði í á kjörtímabilinu 2009 til 2013. Í dag er sama fólk og sömu flokkar algjörlega andsnúið því að leita leiðsagnar þjóðarinnar í þessu máli. Þau treysta henni ekki til að hafa vit fyrir sjálfri sér. Þetta voru viðbúin viðbrögð. Við erum með stjórnarandstöðu sem er samansett af valdboðsflokkum sem vilja að fáir útvaldir ráði yfir öllum hinum. Telja að venjulegt vinnandi fólk hafi ekki getu, tíma eða dómgreind til að afla sér upplýsinga og taka ákvarðanir sem móta þeirra framtíð. Fólk sem telur ykkur ekki geta hugsað á sumrin Að mörgu leyti er verið að reyna að keyra sömu handbók og notuð var á árunum eftir hrun þegar hagsmunahægrið og flokkar þess tóku höndum saman í andstöðu gegn Evrópusambandsaðild. Sagnirnar sem hafa verið mátaðar til að reyna að sannfæra þjóð um að hún eigi ekkert með að kjósa sjálf um næstu skref í Evrópumálum eru enda flestar vel þekktar. Að það sé einhvers konar aðför að fullveldi að láta þjóðina ráða. Að það sé ekki hægt að semja um aðild heldur sé um einhliða aðlögun einvörðungu á forsendum Evrópusambandsins að ræða. Að það þurfi að setja fram samningsmarkmið án þess að komið sé umboð frá þjóðinni til að semja áður en hún sé spurð álits. Að það sé alls ekki á íslenska þjóð leggjandi að lesa, hlusta eða tala yfir sumartímann um mál sem hefur verið óútkljáð og ofarlega á baugi í umræðunni í meira en 30 ár og þess vegna sé óforsvaranlega að efna til þjóðaratkvæðis í lok ágúst. En ég átti ekki von á því að nánast allar ræðurnar sem settar voru á svið í leikþættinum fundarstjórn forseta í gær yrðu um að þingsályktunartillaga sem mun verða rædd í tveimur umræðum á þingi og fara þess á milli inn í utanríkismálanefnd til vandaðrar vinnu hefði ekki farið í samráðsgátt stjórnvalda. Og að það skipti öllu máli hvort utanríkisráðherra mæti á fund nefndar á mánudegi eða fimmtudegi. Mál sem var samið um í stjórnarsáttmála í desember 2024, var boðað fyrir mörgum mánuðum að myndi koma inn á yfirstandandi þing og mál sem snýst einfaldlega um að spyrja íslenska þjóð já eða nei spurningar. Fólk sem vill ekki hlusta og talar á þjóðina Þetta hefði þó ekkert átt að koma á óvart. Þessi hópur sem myndar verðskuldaðan og umtalsverðan minnihluta á þingi vegna niðurstöðu lýðræðislegra kosninga passar sig alltaf á því að festa sig í forminu, vegna þess að hann vill aldrei ræða efnið. Og hvað er efnið að þessu sinni? Það er að ríkisstjórn Íslands treystir þjóðinni til að taka ákvörðun um eigin framtíð. Vegna þess að það er hlutverk stjórnmálamanna, í þjónustu þjóðar, að hlusta á skjólstæðinga sína. Minnihlutinn á þingi vill hins vegar alls ekki að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. Hann er hræddur við eigin þjóð og treystir henni ekki til að taka ákvörðun um hvað sé henni fyrir bestu. Forystufólk minnihlutaflokka talar á þjóðina og vill að hún mótist eftir því sem þeim finnst, ekki því sem þjóðin vill. Fólk sem hefur enga trú á að eigin málstaður njóti lýðræðislegs stuðnings Allt að öllu þá er úrlausnarefnið einfalt. Annars vegar er ríkisstjórn sem ætlar að leiða þetta mál í jörð í eitt skipti fyrir öll með þeim eina eðlilega hætti sem boðlegur er, með því að spyrja þjóðina. Sú ríkisstjórn er líka tilbúin að taka þeirri niðurstöðu sem þjóðaratkvæði skilar, hvort sem hún verður já eða nei, enda í vinnu hjá þjóðinni og hlustar á hana. Hins vegar er um minnihluta að ræða sem er fullkomlega vanstilltur af bræði yfir því að ríkisstjórn ætli að leiða fram þjóðarvilja. Ef hann hefði trú á eigin málstað ætti þessi hópur að fagna því að kjósa um áframhaldandi viðræður, enda fyrirliggjandi að ef þjóðin hafni þeim þá er spurningin um aðild af borðinu um fyrirsjáanlega framtíð. Hann hefur hins vegar ekki þá trú og veit að orðasalatið og hræðsluáróðurinn um hvað felist í samningaviðræðum milli tveggja aðila er innihaldslaust þvaður. Hann veit að það mun koma skýrt í ljós ákveði Íslendingar að hefja viðræður að nýju, og hræðist ekkert meir en að það gerist. Allt þetta leikrit er sett á fót af fólki sem telur að þjóðarviljinn sé ógn við fullveldið sjálft og opinberar þannig afkárlegar túlkanir sínar á lýðræðinu. Ég bið ykkur öll um að hafa það í huga í framhaldinu. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Þórður Snær Júlíusson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar