„Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Freyja Þórisdóttir skrifar 9. mars 2026 20:36 Bjarni Ben, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, mætti í sett og ræddi um aðgerðir gegn verðbólgu. Vísir/Sigurjón Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Bjarni ræddi fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu kvöldfréttum Sýnar nú í kvöld. Hann sagði einnig að þau í samtökunum meti sem svo að frumvarp um tengingu launavísitölu við bætur, sem hefur verið mikið rætt í þingi undanfarnar vikur, sé ekki til þess fallið að draga úr verðbólgunni. „En það hefur verið áhersla á það lögð að halda áfram að huga að samkeppnishæfni atvinnulífsins og að koma með markvissar aðgerðir til þess að draga úr verðbólgunni,“ segir Bjarni. Mikilvægt að loka fjárlagagatinu Bjarni segir aðrar áherslur hafa fallið vel í kramið og nefnir til dæmis þá áherslu ríkisstjórnarinnar að loka fjárlagatinu. Hann telur það jákvætt skref og segir mikilvægt að stefna markvisst á það. Þér finnst það raunhæft að svo verði? „Já, ég tel að ef menn hefðu einbeitt sér að því þá hefði mátt stefna að því á þessu ári, á líðandi ári,“ segir Bjarni. Hann nefnir að þau hjá Samtökum atvinnulífsins hafi hvatt menn áfram með ákveðnar áherslur sem eru í gangi, þá einna helst til orkuöflunar. Þó skipti einnig máli að sjá til þess að ekki sé þrýstingur frá hinu opinbera til hækkunar á verðlagi. „Þegar að laun á opinbera markaðnum hækkuðu í fyrra, um rúmlega ellefu prósent, þá getur enginn af neinni alvöru haft væntingar um það að verðbólgan sé á hraðri leið niður. Þetta eru allt of miklar hækkanir sem við sjáum í kerfinu,“ segir Bjarni. Vongóður þangað til fyrir skömmu Aðspurður segist Bjarni hafa þangað til nýlega verið vongóður um að forsendurákvæði sem er í kjarasamningnum varðandi upplausn kjarasamninga yrði óáreynt. Nú sé hann hins vegar ekki eins viss. „Eftir árásina á Íran, þá eru bara breyttar forsendur. Og það má alveg eins gera ráð fyrir því að við förum að finna fyrir hækkandi olíuverði og það síðan smitist út í verðlag. Hversu mikið það verður er ekki gott að segja,“ segir Bjarni. „En þetta er ekki að hjálpa þegar við að öðru leyti erum svona dálítið á brúninni,“ bætir hann svo við. Bjarni bendir á að enn sé nægur tími til að endurhuga málið um launavísitölutengingu við bætur almannatryggingaa. Hann segir þau hjá samtökunum líta svo á að ef afgreitt muni málið valda „sjálfkrafa vexti í ríkisútgjöldum inn í framtíðina“. Bjarni andmælir forseta ASÍ Finnbjörn Hermannsson, forseti Atvinnusamtaka Íslands (ASÍ), sagði á dögunum að launafólk hefði gert hóflega kjarasamninga í trausti þess að fyrirtæki myndu sýna aðhald í verðlagningu. Sú hafi aftur á móti alls ekki verið raunin og verkalýðshreyfingin hefur haldið því fram að sumir séu að nýta sér þetta ástand. Bjarni segir ekki svo vera en að það geti vel verið að það verði brengluð verðskynjun meðal almennings þegar verðbólga sé á svona hraðri uppleið. Hann setur út á að ekki sé verið að fara nógu varlega í gerð samninga sem eru til mikillar hækkunar. „Þegar að að ýmis önnur ytri áhrif eru tekin með í reikninginn, og menn halda ekki nægilega mikið aftur af sér og það er verið að gera samninga annars staðar sem eru til of mikillar hækkunar. Þá er heildarniðurstaðan óásættanleg,“ segir Bjarni. Launaskrið hjá hinu opinbera Hann kveðst einnig hafa tekið eftir talsverðu launaskriði hjá hinu opinbera og bendir á að spenna í hagkerfinu sé að mestu leyti drifin af því að laun hafi hækkað. „Menn vilja oft ekki heyra þegar Seðlabankinn er að benda á það að spennan í hagkerfinu á Íslandi er að langmestu leyti drifin áfram í grunninn af því að við höfum hækkað laun mjög mikið, langt umfram það sem hefur gerst annars staðar,“ segir Bjarni og ítrekar að það sé grunnástæðan fyrir verðbólgunni. Meirihlutinn gegn aðild Bjarni segir Samtök Atvinnulífsins ekki hafa mótað sér stefnu varðandi Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild. „Við þurfum að ræða það í okkar framkvæmdastjórn og ég er alveg sannfærður um að það eru fjölbreyttar skoðanir svona almennt yfir atvinnulífið en þegar við höfum gert kannanir, eins og við gerðum 2023 og síðan aftur í fyrra, þá sjáum við að það er meirihlutinn sem er gegn aðild og það hefur verið vaxandi,“ segir Bjarni.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Tenging almannatrygginga við launavísitölu Kjaramál Utanríkismál Mest lesið „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Innlent „Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Innlent Árásarmenn teknir af lífi innan 90 daga Erlent Andspyrna á Íslandi sé hvatning fyrir þau sem heima eru Innlent Ósætti vegna dymbilvikulokana í leikskólum Garðabæjar Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Lokað um Hellisheiði og Þrengsli Innlent Hyggjast tollleggja skipaumferð um Hormuz-sund Erlent Voru send í skólasund eftir slysið Innlent Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Innlent Fleiri fréttir Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Færri strætóferðir um páskana Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Hellisheiðin opin að nýju og snjókoma í borginni „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Andspyrna á Íslandi sé hvatning fyrir þau sem heima eru Handtökur vegna þjófnaða, eignaspjalla og líkamsárása „Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Maðurinn er fundinn Ósætti vegna dymbilvikulokana í leikskólum Garðabæjar Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Tvöfaldur verðmunur á Súðavíkurgöngum Guðrúnu frjálst að fara með ósannindi en þurfi að ábyrgjast fyrir dómi Grímuklæddir menn vistaðir í fangaklefa Voru send í skólasund eftir slysið Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins Börn send fótgangandi í sund eftir bílslys Mörg þúsund manns hafa skrifað undir afnám kílómetragjaldsins Drengur á fjórða ári á gjörgæsludeild eftir slysið Nýr sendiherra Bretlands í fullu námi í íslensku Páskarnir líta þokkalega út þrátt fyrir kulda Um 36 prósent foreldra í Reykjavík hafa stytt dvalartíma Of miklar verðhækkanir á eldsneyti kalli á inngrip stjórnvalda Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Vilja lækka álögur tímabundið vegna hækkandi olíuverðs Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Sjá meira