Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).

Fréttamynd

Mikil­vægt að fatlaðir geti tekið þátt í um­ræðunni

Víða hafa verið haldnir fundir, pallborð og kappræður nú þegar þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu nálgast óðfluga. Félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir einum slíkum í dag, þann 26. ágúst, og leit fréttamaður Sýnar þar við.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Svona var á­varp Krist­rúnar vegna at­kvæða­greiðslunnar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp, söngkonan Bríet tók lagið og uppistandarinn Bergur Ebbi Benediktsson leiddi  samtal við salinn í svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ í Austurbæ í Reykjavík sem fram fór fyrr í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn.

Innlent
Fréttamynd

Af­hjúpi ekkert nema þeirra eigin við­horf til fólksins í landinu

Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði.

Innlent
Fréttamynd

Kjánalegustu augna­blikin í um­ræðunni um aðildar­við­ræður

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er handan við hornið og hefur tekið yfir alla umræðu í landinu. Nóg hefur verið rætt og ritað um málið og margir farið óhefðbundnar leiðir í nálgun sinni. Vísir hefur tekið saman kjánalegustu augnablikin úr umræðunni síðustu vikurnar.

Menning
Fréttamynd

ESB-kosning á radar er­lendra fjár­festa í ís­lenskum verð­bréfum

Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum.

Innherji
Fréttamynd

„Þetta er ekki sak­laus könnunar­leiðangur“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. 

Innlent
Fréttamynd

Fjöru­tíu og eitt þúsund þegar greitt at­kvæði

Tugir þúsunda hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fer fram á laugardag. Opnunartími í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hefur verið lengdur nú þegar styttist óðum í kjördag. 

Innlent
Fréttamynd

Ís­lendingar voru al­ræmdir og lítið traust á milli

„Alþjóðlega andrúmsloftið var allt annað þá. Ísland var nýkomið úr bankahruninu. Íslenskir fjármálamenn alræmdir. Það var afskaplega lítið traust úti í Evrópu til íslenskrar efnahagsstefnu og fjármála,“ segir Þorsteinn Gunnarsson varaformaður íslensku samninganefndarinnar í síðustu aðildarviðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstu við­brögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu

Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari.

Innlent
Fréttamynd

Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga

Enn dregur saman milli fylkinga í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu hyggjast 51,3 prósent þeirra sem taka afstöðu segja já en 48,7 prósent segja nei. 

Innlent
Fréttamynd

Ný Maskínukönnun frum­sýnd í Pallborði

Greint verður frá niðurstöðum úr glænýrri könnun Maskínu í Pallborðinu nú þegar fjórir dagar eru í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.

Innlent
Fréttamynd

Lítur um­mæli Ólafs Ragnars al­var­legum augum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist líta ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, „alvarlegum augum“ þegar hann sagði utanríkisráðuneytið orðið að „áróðursvél“. Kveðst hún vonast til að forystufólk landsins, líka fyrri tíðar, nálgist umræðuna af auðmýkt.

Innlent
Fréttamynd

Telur raun­sætt að Ís­lands­mið verði „sér­stakt stjórnsýslusvæði“

Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra úr röðum Samfylkingarinnar, telur raunhæft að samið verði um það í viðræðum við Evrópusambandið að hafið í kringum Ísland yrði sérstakt stjórnsýslusvæði um fiskveiðar. Hún segist ekki vera sami Evrópusinni og hún var áður og lítur ekki svo á að hugsanlegar aðildarviðræður snúist um að „kíkja í pakkann“, heldur sé um „harðar samningaviðræður“ að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Hvetur al­menning til að vara sig á gerviaðgöngum

Netöryggissveitin CERT-IS fylgist grannt með notkun gerviaðganga á samfélagsmiðlum nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Tilgangur þeirra er að ýta undir upplýsingaóreiðu að sögn forstöðumanns sem hvetur almenning til að vera á varðbergi.

Innlent
Fréttamynd

Reglu­gerðir ESB hafi „sér­stak­lega slæm á­hrif á Ís­land“

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair telur að þunglamaleg reglugerð Evrópusambandsins geti þrengt að rekstri fyrirtækja innan sambandsins og gæta þurfi að samkeppnishæfni þeirra. Hins vegar stuðli vinnumarkaðsmódelið hérlendis að óstöðugleika og geti verið heilmikil áskorun í fyrirtækjarekstri. Sveinn Logi Sölvason forstjóri Emblu Medical, móðurfélags Össurar, segir möguleg tækifæri innan myntbandalags Evrópusambandsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Ætlar hann að segja já eða nei?“

„Nú er þetta aðeins að fara að verða eins og í frúinni í Hamborg: Ætlar hann að segja já eða nei?“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þar sem hann ræddi um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Nei eða já frá ó­líkum sjónar­hornum á Sprengi­sandi

Sprengisandur verður helgaður komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Talið verður upp úr kjörkössunum eftir viku og þá komumst við að því hvort þjóðin segi nei eða já.

Innlent
Fréttamynd

Límmiðar lifðu ekki af nóttina

„Ég er bara algjörlega miður mín út af þessu. Að þetta fái ekki að vera í friði. Þetta eru líklega einhver skemmd epli,“ segir Frosti Sigurgeirsson, bóndi á Heiðarseli á Hróarstungu í Fljótsdalshéraði, sem setti upp límmiða á heyrúllur í gær, merkta „Já til að sjá“. Miðarnir voru horfnir í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Segja Morgun­blaðið leggja þeim orð í munn

Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn. 

Innlent
Fréttamynd

Gætum þurft að fram­vísa smáríkjakortinu

„Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins.

Innlent