Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2026 13:03 Antonin Kinsky kemur út af fyrir Guglielmo Vicario á sautjándu mínútu í 5-2 tapi Tottenaham í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Getty/Alberto Gardin Fjöldi markvarða, þar á meðal Peter Schmeichel og Joe Hart, hafa lýst yfir stuðningi við Antonín Kinsky, markvörð Tottenham Hotspur, eftir skelfilega frammistöðu hans í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Atlético Madrid.
Hinn 22 ára gamli markvörður, sem var að spila sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni, gerði tvö afdrifarík mistök snemma í leiknum sem leiddu til marka frá Marcos Llorente og Julián Álvarez. Á milli þessara tveggja marka komst Antoine Griezmann einnig á blað eftir önnur varnarmistök og Spurs var því 3-0 undir eftir aðeins fimmtán mínútur. Igor Tudor knattspyrnustjóri Spurs tók Kinsky þá af velli eftir sautján mínútur og setti aðalmarkvörðinn Guglielmo Vicario inn á í hans stað. Króatinn sagðist hafa gert það til að „vernda drenginn“ en hefur verið gagnrýndur fyrir skiptinguna. Mun hafa afleiðingar Peter Schmeichel sagði í útsendingu CBS-sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum: „Hann tekur hann út af, það mun hafa afleiðingar fyrir restina af ferli hans. Hann er algjörlega búinn að rústa ferli hans,“ sagði Schmeichel. „Þegar nafn hans verður nefnt í framtíðinni mun allur fótboltaheimurinn muna eftir þessari stundu. Hann þurfti á stuðningi að halda, að minnsta kosti fram í hálfleik,“ sagði Schmeichel. Hef aldrei séð þetta á fótboltavelli Paul Robinson, fyrrverandi markvörður Tottenham, sem lýsti leiknum fyrir BBC sagði ákvörðun Tudor um að skipta Kinsky út af vera „sjálfstraustseyðandi“ og bætti við: „Ég hef aldrei séð þetta á fótboltavelli,“ sagði Robinson. Í samtali við TNT Sports sagði Joe Hart, fyrrverandi markvörður Englands: Algjörlega misboðið fyrir hans hönd „Mér er algjörlega misboðið fyrir hans hönd [Kinsky]. Hann átti skelfilegar fjórtán mínútur en ég veit ekki hvað ég á að segja. Mér er bara misboðið fyrir hönd drengsins. Þetta Tottenham-lið er út um allt,“ sagði Hart. David De Gea, fyrrverandi markvörður Manchester United, sem nú leikur með Fiorentina í ítölsku deildinni, bauð unga markverði Spurs stuðning sinn. De Gea skrifaði á X-reikning sinn: „Enginn sem hefur ekki verið markvörður getur skilið hversu erfitt það er að spila í þessari stöðu. Haltu höfðinu hátt og þú heldur áfram.“ Vicario fékk á sig tvö mörk til viðbótar þegar Spurs tapaði 5-2 í auðmýkjandi ósigri í Madríd.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tottenham Hotspur Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport DocZone snýr aftur Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjá meira