Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Lovísa Arnardóttir skrifar 11. mars 2026 18:59 Stefán Vagn tekur við þingflokksformennsku af Ingibjörgu sem tókst á við Lilju um formennsku í Framsókn fyrir stuttu. Lilja lagði breytinguna til. Vísir/Lýður Valberg og Vilhelm Lilja D. Alfreðsdóttir, nýr formaður Framsóknarflokksins, lagði til við þingflokkinn að gerð yrði breyting á formanni þingflokks. Lilja er ekki hluti af þingflokknum. Varaformaður flokksins, Stefán Vagn Stefánsson, tekur við formennsku af Ingibjörgu Isaksen.
Þórarinn Ingi Pétursson tekur við sem varaþingflokksformaður samkvæmt tilkynningu sem send var út í dag. Alls á Framsóknarflokkurinn fimm þingmenn á Alþingi. Það eru þau Ingibjörg Isaksen, Halla Hrund Logadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Stefán Vagn Stefánsson og Þórarinn Ingi Pétursson. Kosið var um nýjan þingflokksformann á fundi í dag en Sigurður Ingi var fjarverandi vegna veikindaleyfis. „Nú er komin ný forysta og það er formaðurinn sem tekur ákvörðun og leggur það fyrir þingflokkinn hver er þingflokksformaður á hverjum tíma. Þetta er tillaga formanns um að gera þessa breytingu. Ég er varaformaður flokksins og formaðurinn ekki á þingi þannig það er alveg rökrétt að varaformaðurinn sé andlit flokksins inni á þinginu,“ segir Stefán Vagn í samtali við fréttastofu. Þurftu að stokka spilin Spurður hvort það hefði komið til greina að Ingibjörg yrði varaþingflokksformaður segir Stefán Vagn tillöguna frá formanni og hún hafi verið samþykkt samhljóða á fundi þingflokksins. „Með nýrri forystu þá þarf stundum að stokka upp spilin og við gerðum það í dag. Ég hef miklar og góðar væntingar um að þetta reynist okkur vel og er glaður og ánægður með það traust sem mér hefur verið sýnt innan þingflokksins að taka við þessu starfi. Ingibjörg hafði sinnt því með sóma frá 2021.“ Engar breytingar á nefndum enn Á vef Alþingis má sjá að Ingibjörg situr eins og er í tveimur nefndum fyrir hönd flokksins og Stefán Vagn líka. Halla Hrund situr í einni nefnd og Sigurður Ingi líka. Þórarinn situr ekki í neinni nefnd en er áheyrnarfulltrúi í tveimur. „Við eigum eftir að fara yfir það þingflokkurinn hvort að við gerum einhverjar breytingar í nefndum. Það hefur ekkert verið ákveðið með það. Það getur alveg verið. Ég er í tveimur nefndum og kannski þarf ég að losa mig úr annarri þeirra til að sinna þingflokksformennskunni betur. Þetta á allt eftir að koma í ljós og við vinnum þetta saman sem þingflokkur.“ Lilja Dögg var nýverið kjörin formaður flokksins en háði baráttu um embættið við Ingibjörgu. Stefán Vagn segir að þó svo að fólk takist á innan flokksins vinni það vel saman þegar niðurstaðan liggur fyrir. „Auðvitað tökumst við á, svo höldum við bara áfram og það er það sem við erum að gera.“ Fréttastofa náði ekki sambandi við Ingibjörgu Isaksen við vinnslu fréttarinnar.
Framsóknarflokkurinn Alþingi Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira