Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Smári Jökull Jónsson skrifar 13. mars 2026 19:00 Guðbjörg Sveinsdóttir er ráðgjafi Afstöðu, félags fanga. Vísir/Lýður Valberg Ráðgjafi Afstöðu segir tilhögun fangelsismála hér á landi barn síns tíma en félagið kynnti í morgun nýjar útfærslur fangelsishúsnæðis sem einkennast af smærri húsnæðiseiningum inni í íbúðahverfum. Þar gætu fangar nýtt þjónustu samfélagsins og boðið upp á þjónustu sjálfir.
Á fundi Afstöðu í morgun voru kynntar nýjar útfærslur fangelsishúnæðis sem einkennast af smærri húsnæðiseiningum inni í íbúðahverfum. Ráðgjafi Afstöðu segir að um helmingur þeirra sem setið hafi í fangelsum hér á landi vera komna aftur inn þremur til fimm árum seinna. „Tilhögun fangelsismála á Íslandi er eiginlega barn síns tíma að okkar mati. Þetta er hugmyndafræði sem var byrjað með á 19. öld, stórar stofnanir einhvers staðar fjarri öllu samfélaginu. Og fólk læst þar inni,“ segir Guðbjörg Sveinsdóttir ráðgjafi hjá Afstöðu, félags fanga. Á kynningunni gátu gestir kynnt sér málin í gegnum sýndarveruleika.Vísir/Eiríkur Ingi „Okkur finnst, líkt og mörgum öðrum, að það sé kominn tími til að brjóta þetta upp og hugsa öðruvísi.“ Lausn við yfirfullum fangelsum Aðalmarkmið verkefnisins sé að aðlaga fanga að samfélaginu og öfugt. Fangar gætu þá nýtt þjónustu samfélagsins og jafnvel boðið upp á þjónustu til baka. „Þannig er það hugsað sem mannúðlegri framkvæmd á því að endurhæfa fólk aftur út í samfélagið. Þetta er líka talið vera ódýrara því það þurfa færri að vinna á þessum minni stöðum. Kosturinn er að það er styttra í alla þjónustu og þú ert meira inni í samfélaginu,“ bætir Guðbjörg við. Roger Nilsen er varaforseti Rescaled sem talað hefur verið nýrri hugsun hvað varðar fangelsishúsnæði.Vísir/Lýður Valberg Í Belgíu, Hollandi, Noregi og Finnlandi hafa verið byggð fangelsi í anda hugmynda Rescaled, evrópskra samtaka á bakvið verkefnið. Varaforseti samtakanna er ekki í vafa um að úrræðið myndi nýtast hér á landi þar sem hlutfall síendurtekinna afbrota er hátt. „Það þýðir að kerfið er yfirfullt. Af hverju ættum við ekki, í staðinn fyrir að byggja fleiri öryggisfangelsi, að byggja fangelsi sem geta hjálpað fólki aftur inn í samfélagið og gert þau að betri borgurum,“ segir Roger Nilson varaforseti Rescaled. Þarf að hugsa hlutina upp á nýtt Hann segir kostnað við byggingu húsnæðis sem þessa lægri en hefðbundinna fangelsa sem séu flókin í byggingu og krefjist mikils fjölda öryggisstarfsmanna. Roger og Guðbjörg eftir kynninguna í morgun.Vísir/Lýður Valberg „Í staðinn gæti öðruvísi starfsfólk unnið í þessu húsnæði en þar væri líka sólarhringsgæsla.“ Útfærslur húsnæðis í anda hugmynda Rescaled eru með ýmsum hætti og gert ráð fyrir að þar sé hægt að vista fanga í opnum úrræðum en einnig þar sem meiri gæslu er krafist. Roger Nilsen á kynningunni í morgun.Vísir/Eiríkur Ingi Guðbjörg segir meiri fræðslu nauðsynlega vegna almennrar andstöðu fólks við hugmyndum um fangelsi í nærumhverfi sínu. „Það horfir þannig við mér að mér finnst bara þá að það samfélag sem að hugsar svona og hagar sér svona, það þarf líka að endurhæfast. Og hugsa hlutina svolítið upp á nýtt.“
Fangelsismál Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira