Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2026 15:46 Selfoss náði undirtökunum gegn Stjörnunni með 10-1 kafla í fyrri hálfleik. vísir/viktor Selfoss vann gríðarlega mikilvægan sigur á Stjörnunni, 35-33, í 19. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Með sigrinum komust Selfyssingar upp úr fallsæti.
Mikið var undir í leiknum á Selfossi í dag en fyrir hann munaði aðeins einu stigi á liðunum. Eftir leikinn munar áfram einu stigi á þeim en Selfyssingar eru núna í 7. sætinu en Stjörnumenn í því áttunda og neðsta. Stjarnan byrjaði leikinn betur og komst í 5-9. Selfoss svaraði með 10-1 kafla og náði fimm marka forskoti, 15-10. Heimakonur voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17-13. Marte Syverud skoraði níu mörk fyrir Selfoss í leiknum í dag og Hulda Dís Þrastardóttir sjö. Í seinni hálfleik hleyptu Selfyssingar Stjörnukonum aldrei nær sér en tveimur mörkum og enduðu á að vinna, 35-33. Þetta var þriðji sigur Selfoss í deildinni á tímabilinu en liðið er með sex stig, einu stigi meira en Stjarnan. Í síðustu tveimur umferðunum mætir Selfoss Haukum á heimavelli og ÍR á útivelli. Stjarnan fær aftur á móti Fram í heimsókn og sækir svo Hauka heim. Sara Katrín Gunnarsdóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna sem hefur tapað sjö leikjum í röð. Eva Björk Davíðsdóttir gerði sjö mörk. Liðið í áttunda og neðsta sæti Olís-deildarinnar fellur niður í Grill 66-deildina en liðið í 7. sæti fer í umspil.
Olís-deild kvenna UMF Selfoss Stjarnan Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Fótbolti Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Handbolti Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya | Stórt Evrópuverkefni á Hlíðarenda Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira